Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar 21. júlí 2026 13:00 Í nokkrum ferðum til Reykjanesbæjar fyrir stuttu dáðist ég að því hversu góð Reykjanesbrautin er orðin eftir að breytingum og viðbótum lauk nú í vor. Beinn, breiður og vel upplýstur vegur, tvær akreinar í hvora stefnu og nægt pláss á milli akstursstefna. Veðrið var fallegt dagana sem ég var á ferðinni, léttskýjað, bjart og þurrt og akstursskilyrði með besta móti. Umferðin gekk vel, nema hvað flestir ökumenn sem ég fylgdist með voru að keyra nokkuð yfir hámarkshraða, sem er enn 90 km/klst á Reykjanesbraut. Það þýðir að ökumenn voru að brjóta lög um hámarkshraða í landinu á leiðinni þessa daga og mig grunar að það sama eigi við um flesta aðra daga. Eftir óformlega rannsókn á hámarkshraða í nágrannalöndum okkar og hef komist að því að hæstur er hann í Danmörku, 130 km/klst, í Svíþjóð 120 km/klst og í Noregi má að hámarki keyra á 110 km hraða. Á Íslandi er því þannig háttað að hámarkshraði á vegum er hvergi hærri en 90 km/klst. Þar breytir engu hvort um er að ræða tvöfalda Reykjanesbraut með öllum þeim kostum sem ég taldi upp að ofan eða aðra vegi á landinu, sem flestir eru bara ein akrein í hvora átt og á mörgum þeirra eru mun erfiðari akstursskilyrði. Að mínu mati er tækifæri til að laga þetta og hækka hámarkshraðann á Reykjanesbraut upp í 110 km/klst eins og eðlilegt er að hann sé miðað við það sem gengur og gerist í öðrum löndum. Hættum að gera ökumenn að lögbrjótum Árið 2012 lagði hæstvirtur utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þá þingmaður Sjálfstæðisflokksins fram fyrirspurn til innanríkisráðherra um hvort hægt væri að hækka hraðann á Reykjanesbraut í 110 km/klst þar sem hún væri svo vel til þess fallin. Nú er Brautin orðin miklum mun betri en hún var árið 2012 og því finnst mér tilvalið að rifja upp þessi orð og leggja ný í belg um að það sé svo sannarlega kominn tími til þess að hækka hámarkshraðann á þessari leið. Hægt væri að haga málum þannig að hækkunin yrði bara í gildi þegar akstursaðstæður væru góðar og til þess fallnar að keyra á þessum hraða. Á dögum þegar aðstæður væru verri væri hægt að lækka hámarkshraða aftur niður í 90 km/klst. Þessu gæti Vegagerðin stýrt með upplýsingaskiltum sem myndu sýna ökumönnum hver leyfilegur hámarkshraði væri hverju sinni. Einnig væri hægt að hafa aðrar mikilvægar upplýsingar eins og hitastig og vindstyrk á skiltunum líkt og gert er á ýmsum stöðum á landinu. Ég biðla því til hæstvirts ráðherra að rifja upp þessa ágætu fyrirspurn sína frá 2012 og koma málinu í farveg sem allra fyrst, því sem utanríkisráðherra lands þar sem flestir þurfa að keyra Reykjanesbraut til að ferðast til og frá landinu þá er vel hægt að færa fyrir því rök að það sé snertiflötur á málinu hjá ráðherra utanríkismála. Íslendingum er vel treystandi til þess að keyra þessa leið á meiri hraða en nú er leyfilegt, á hraða sem leyfður er á Norðurlöndum og annars staðar í heiminum. Staðreyndin er líka sú að ökumenn eru nú þegar að keyra yfir hámarkshraða á Reykjanesbraut án þess að slysum hafi fjölgað, slysum hefur sem betur fer fækkað upp á síðkastið, örugglega vegna þess hversu góðar akstursaðstæðurnar eru orðnar. Vandamálið er samt að með því að keyra á hraða sem ökumönnum virðist finnast vera eðlilegur hraði á leiðinni eru þeir að brjóta landslög, sem mér finnst mjög miður. Viðskiptaráð vekur einnig athygli á þessu máli í nýlegri skýrslu sinni og bendir á að það sé mikill þjóðhagslegur ábati við að hækka hámarkhraða á þeim leiðum sem það þola, og nefna Reykjanesbraut sérstaklega í því tilliti. Skrýtnar reglur um kaup á matvöru á Keflavíkurflugvelli Fyrst ég er farin að tala um Keflavíkurflugvöll þá er annað sem mér finnst að við verðum að endurskoða og það eru óvenjulegar og það sem mér virðast vera séríslenskar reglur um kaup á matvöru á flugvellinum. Hér á Íslandi er það þannig að einungis þeir sem eru með brottfararspjald mega kaupa sér matvöru innan öryggissvæðis á millilandaflugvöllum. Þetta þýðir að farþegum á leið inn í landið, starfsfólki flugvalla og öðrum sem staldra þar við er óheimilt að kaupa sér mat eða drykk innan öryggissvæðis. Sem sagt - það má kaupa sér pylsu þegar farið er í flug, en ekki á leiðinni úr flugi. Eftir að hafa farið í gegnum marga flugvelli á ferðalögum síðustu ára þá minnist ég þess ekki að á neinum öðrum flugvelli en hér á landi hafi þess verið krafist að maður sýni brottfararspjald þegar keypt er matvara. Ég þekki ekki nákvæmar ástæður að baki þessarar furðulegu reglu, en hún hefur að gera með tollalög á flugvellinum. Að mínu mati er þetta mjög kjánalegt, er örugglega verulega óþægilegt fyrir matsölustaði á flugvellinum sem myndu vilja selja fleirum sínar vörur og alls ekki í anda frelsis og góðrar þjónustu við ferðamenn. Því eigum við að breyta þessu sem allra fyrst og leyfa fólki að kaupa sér mat og drykk á flugvellunum, sama á hvaða leið það er. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks í SV kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 15.08.2026 Halldór Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Sjá meira
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun