„Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ Valur Páll Eiríksson skrifar 19. júlí 2026 18:55 Jón Þór var hreinskilinn eftir leik. vísir/lýður Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, fór ekki í grafgötur með það að mestallt hafi farið úrskeiðis í 5-0 flengingu KR á Stjörnunni í Bestu deild karla í fótbolta síðdegis. Flenging var akkúrat orðið sem Jón Þór sjálfur notaði til að lýsa leik dagsins. „
Við vorum bara flengdir á beran bossann og þá þarf maður bara að fara aðeins inn í herbergi og skammast sín pínulítið,“ segir Jón Þór við Sýn Sport og Vísi eftir leik dagsins. Stjarnan sá aldrei til sólar í dag, átti vart skot á mark og lenti hreinlega í hakkavél KR-inga sem át þá upp til agna. Stjörnumenn hafa hins vegar ekki langan tíma til að staldra við, enda Evrópuleikur við finnskan andstæðing á fimmtudaginn kemur. „En við þurfum að rífa okkur fljótt upp og vera klárir í fyrramálið. Við erum að fara í Evrópuverkefni strax á fimmtudaginn aftur. Nú er bara að einbeita sér að því að eiga þar góðan leik, góða frammistöðu og fínt verkefni.“ Jón Þór gat ekki mikið gert til að breyta gangi leiks dagsins.Vísir/Anton Brink Stjarnan er ekki fyrsta liðið sem lendir í KR-liðinu í slíkum ham er liðið var í dag. „Við hittum á KR-liðið hérna í fantaformi og vorum engan veginn tilbúnir að mæta því. Því fór sem fór. En við gerðum þetta líka helvíti þægilegt fyrir þá. Við urðum bara litlir í okkur eftir því sem leið á leikinn. KR gekk á lagið og eru með frábært lið í því að finna blóðlyktina og ráðast á hana,“ segir Jón Þór. Hann reyndi við þrefalda skiptingu í hálfleik, þegar staðan var 2-0. Aðeins korter var liðið á síðari hálfleik þegar staðan var orðin 5-0. Eru vonbrigði að skiptingarnar hafi ekki skila meiri árangri? „Það var fyrirfram ákveðið. Við erum að reyna að dreifa álaginu á milli Evrópuverkefna og stýra því þannig að allir verði klárir á fimmtudaginn. Við verðum að svara fyrir þetta þar,“ segir Jón Þór. Hver eru skilaboðin til leikmanna eftir svona lagað? „Við mætum ekki nægilega vel undirbúnir til leiks. Við töpum allri baráttu, vinnusemi, þéttleikinn var ekki til staðar. Það var ekkert hérna til staðar í dag. Það hlýtur að skrifast á minn reikning. Það eru engin skilaboð til liðsins önnur en þau að við mætum algjörlega á rassgatinu hérna í Frostaskjólið og þá er þetta bara niðurstaðan og það getur ekki verið nein önnur niðurstaða og það vita það allir.“
Besta deild karla Stjarnan KR Íslenski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira