Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. júlí 2026 13:50 Kári segir Þorbjörgu ekki sinna starfi sínu. Vísir/Samsett Kári Stefánsson segir netverslun með áfengi í boði ríkisstjórnarinnar og sérstaklega dómsmálaráðherra þótt hún sé í trássi við lög.
Í pistli á samfélagsmiðlum gagnrýnir hann flutningsmenn frumvarpsins um breytingar á áfengislögum til að heimila netverslun með áfengi, sem allir eru þingmenn Viðreisnar, og sérstaklega Grím Grímsson þingmann og fyrrverandi lögreglumann og Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. „Talsmaður frumvarpsins var Grímur Grímsson fyrrverandi lögreglumaður sem lét hafa það eftir sér í Morgunblaðinu að aukið aðgengi að áfengi yki ekki neyslu þess. Þessi staðhæfing úr munni lögreglumannsins farsæla er gott dæmi um það hvað gerist þegar menn stíga út fyrir sitt sérsvið og halda að brjóstvitið dugi eitt og sér. Staðreyndin er nefnilega sú að það er margoft búið að sýna fram á það með góðum faraldsfræðirannsóknum að því meira sem aðgengið er þeim mun meiri sé drykkjan.,“ segir Kári. Aukið aðgengi aukir neyslu Í því samhengi vitnar hann til orða Marks Pearson, eins framkvæmdastjóra OECD, sem flutti erindi á Læknadögum hér á landi í janúar. Hann muni hafa sagt að ýmislegt benti til þess að síðan netsala með áfengi hófst hér á landi hafi áfengisneysla aukist á meðan hún hafi minnkað í flestum aðildarríkjum OECD. „Það er því ljóst að aukið aðgengi að áfengi eykur neyslu þess. Aukin neysla áfengis eykur þann fjölþætta vanda sem áfengi veldur: Áfengi kemur að stórum hundraðshluta alvarlegra slysa og ofbeldisverka. Heimilisofbeldi á sér til dæmis oftast stað þegar gerandinn er undir áhrifum áfengis. Áfengisnotkun eykur líkur á margs konar gerðum af krabbameinum eins og lifrarkrabbameini, briskrabbameini, og krabbameini í vélinda og munni og áfengisnotkun hækkar blóðþrýsting og eykur líkur á hjartabilun. Verstur af þeim sjúkdómum sem fylgja áfengisdrykkju er samt áfengissýkin sjálf sem oftar en ekki leggur líf neytandans og fjölskyldu hans í rúst. Áfengi er einn af þeim þáttum í umhverfi okkar sem veldur hvað mestu álagi á heilbrigðiskerfið okkar sem er komið að fótum fram,“ segir Kári. Samfélagið hafi gefist upp Þrátt fyrir þetta segir Kári að út líti fyrir að þessir þingmenn og samfélagið í heild sinni hafi hálfpartinn gefist upp á því að stemma stigu við skaðsemi áfengisneyslu. Hann segist ekki vera að tala fyrir banni á sölu og neyslu áfengis heldur einungis tilraunum til þess að koma í veg fyrir aukningu á neyslu og minnkun á henni. „Þegar íslensk lög eru lesin virðist það kýrskýrt að netsala með áfengi sé ólögleg á Íslandi og héraðsdómur er búinn að staðfesta það. Engu að síður gerir lögreglan ekkert í málinu og dómsmálaráðherra segir að hún ætli ekki að fara fram á að það við lögregluna að hlutast til um málið,“ segir Kári. „Netverslun með áfengi er þess vegna eins og stendur í boði ríkisstjórnar og þá sérstaklega dómsmálaráðherra þótt hún sé í trássi við lög,“ segir hann.
Fjölmiðlar Áfengi Netverslun með áfengi Lögreglumál Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira