„Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júlí 2026 10:01 Daníel Hafsteinsson horfir út en stekkur ekki frá borði í Víkinni fyrir hvað sem er. Vísir/Ívar Fannar Daníel Hafsteinsson var hetja Víkinga er liðið lagði Ungverjalandsmeistarana í forkeppni Meistaradeildarinnar í vikunni. Hann er opinn fyrir því að spila erlendis en flýtir sér hægt.
Víkingur gerðu 2-2 jafntefli við Ungverjalandsmeistara Györ ytra eftir að hafa unnið fyrri leikinn 1-0 í Víkinni. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskt lið skellir landsmeisturum sterkrar Evrópuþjóðar úr keppni. Daníel Hafsteinsson skoraði bæði mörk Víkings í leiknum. Eða hvað? Síðara markið var skráð á Gylfa Þór Sigurðsson eftir endurskoðun en skot Daníels fór af Gylfa og inn. Stal hann af honum markinu? „Já, mér sýnist hann vera að gera það. Ég vil meina að boltinn hafi verið á leiðinni inn. En þetta er fínt, ég tek stoðsendinguna og fínt að Gylfi hafi sett hann líka. Það er bara flott,“ segir Daníel léttur í Sportpakkanum á Sýn. Daníel hefur myndað ógnarsterkt miðjupar með Gylfa Þór í Víkingsliði sem tapar vart fótboltaleik þessi dægrin. Hann hefur almennt spilað glimrandi vel með Víkingum frá skiptum hans frá KA fyrir síðustu leiktíð. En hefur hann einhvern tíma spilað betur en í ár? „Í rauninni ekki. Maður er það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur. Það má alveg segja það, ég spilaði frábærlega í fyrra líka, að mínu mati og með KA þar á undan í aðeins minna umhverfi. Mér finnst ég hafa spilað vel síðustu tvö og hálft ár en það má segja að þetta sé árið sem maður er að spila best. Er maður ekki að stefna á það?“ Hoppar ekki burt fyrir eitthvað rugl Góðri spilamennsku fylgir altént áhugi og ekkert einsdæmi að áhugi vakni erlendis frá á leikmönnum Víkings. Daníel segir hugann leita aftur út, en hann lék með Helsingborg í Svíþjóð til skamms tíma fyrir örfáum árum. Hann segist þó ekki vera að flýta sér. „Ég hef alveg hugsað um það í einhvern tíma, ekki bara undanfarna mánuði heldur síðustu ár. Ég hef alltaf haft eyrun opin ef eitthvað er í boði en hingað til hefur ekkert verið sem er almennilegt vit í,“ „Ef það kemur á borðið er ég klárlega opinn í því, ef það er eitthvað sem meikar sens. En við erum í alvöru pakka núna hjá Víkingi sem er algjör veisla. Þannig að maður er ekkert að hoppa í burtu fyrir eitthvað rugl,“ segir Daníel. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira