Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. júlí 2026 16:31 Arnór Atlason þarf að bíða eitthvað lengur eftir því að sjá Benedikt Gunnar á æfingu. TTH HOLSTEBRO Arnór Atlason hefur lítinn tíma til að undirbúa danska handboltaliðið TTH Holstebro fyrir komandi átök í deild, bikar og Evrópu. Nú þegar hafa tveir leikmenn lent í meiðslum en Arnór vonast til að sjá þá sem fyrst aftur.
Leikjaálagið verður mikið í vetur hjá TTH Holstebro, sem tekur þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn síðan árið 2014. Liðið dróst í morgun í riðil með Benfica frá Portúgal, Karviná frá Tékklandi og Torrelavega frá Spáni í Evrópudeildinni. „Það verða margir leikir og ekki svo margar æfingar, þannig að það er mikilvægt að við nýtum tímann vel núna á, þegar við höfum meiri tíma til að vinna í hlutunum,“ sagði Arnór Atlason við Avisen í morgun eftir fyrstu æfingu liðsins á undirbúningstímabilinu. Benedikt Gunnar Óskarsson, nýr leikmaður liðsins, lenti í alvarlegum meiðslum meðan hann var í sumarfríi hér á Íslandi. Benedikt fékk golfkúlu í höfuðið og missti hreyfigetu í hægri höndinni, eins og kom fram í viðtali hans við Vísi í gær. „Í augnablikinu er einbeiting okkar bara á að Benedikt nái fullum bata. Hann er í góðum höndum á Íslandi og er hægt og rólega að taka líkamlegum framförum. Tilfinningin í hendinni er að verða betri og betri. Endurhæfing er í fullum gangi og hann fær meðferð þrisvar í viku. Við fylgjumst náið með framvindunni og vonum það besta fyrir Benedikt,“ sagði Arnór. Arnór Atlason er einnig aðstoðarþjálfari Snorra Steins Guðjónssonar hjá íslenska landsliðinu. vísir / vilhelm Auk Benedikts er bakvörðurinn Thomas Damgaard að glíma við meiðsli. „Í sókninni verðum við líka án Thomas Damgaard í byrjun tímabilsins og þess vegna verðum við, meðal annars, að koma Thomas Houtepen betur inn í hlutina,“ sagði Arnór en var sáttur með fyrstu æfingu liðsins. „Strákarnir komu í góðu skapi og í góðu standi, þannig að ég fer ekki með slæma tilfinningu í háttinn eftir fyrstu æfinguna. Það er alltaf gaman að koma aftur í höllina, sjá nýju strákana á gólfinu og hitta hóp sem manni þykir vænt um að vera með eftir að hafa verið í sundur í mánuð,“ sagði Arnór.
Danski handboltinn Handbolti Tengdar fréttir Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Valur og FH, liðin sem léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í vor, fengu í dag að vita hvaða liðum þau mæta í Evrópudeildinni í vetur. 17. júlí 2026 10:31 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Sjá meira
Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Valur og FH, liðin sem léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í vor, fengu í dag að vita hvaða liðum þau mæta í Evrópudeildinni í vetur. 17. júlí 2026 10:31