Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar 16. júlí 2026 09:02 Er það vegna getuleysis í almennri löggæslu? Það líður varla sá morgunn að fréttamiðlar flytji okkur ekki fregnir af því að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi verið kölluð út til að handtaka vopnaða einstaklinga eða bregðast við hættuástandi. Tölfræðin sýnir gríðarlega fjölgun: Árið 2014 fór sérsveitin í aðeins 38 útköll, en árið 2023 voru þau orðin 461. Þetta er tólfföld fjölgun á einum áratug. Því miður hef ég ekki tölurnar fyrir árin 2024 og 2025 en það er samt enginn vafi á því að sú þróun hefur ekki farið niður á við. Fréttaflutningur síðustu tveggja ára bendir til þess að útköllunum sé síst að fækka og að álagið haldi áfram að aukast dag frá degi. Þessi þróun vekur áleitnar spurningar. Af hverju þurfum við svona oft á sérhæfðu vopnuðu lögregluliði að halda? Í samfélagi sem telur 400.000 manns! Er það vegna þess að glæpaheimurinn er að harðna, eða stafar þetta hreinlega af því að almenna lögreglan er orðin ófær um að sinna eigin verkefnum? „Varnarvopnin“ og stunguvestin duga skammt Það hefur ekki vantað að almenna lögreglan hefur verið að vopnvæðast á liðnum árum undir því yfirskini að verið sé að bæta við svokölluðum „varnarvopnum“ eða „varnarbúnaði“, stundum kallað afbrotavarnir. Í stað hefðbundinna áherslna hefur vinnubúnaður almennra lögreglumanna breyst mikið; nú klæðast þeir sérstökum stunguvestum dagsdaglega til að verjast hnífaárásum og bera rafvarnarvopn (rafbyssur) í beltinu sem eiga að brúa bilið á milli kylfu og skotvopna. Þá eru skotvopn einnig til staðar í læstum hólfum í lögreglubílum landsins. En þrátt fyrir þessa hægu vopnvæðingu og aukinn varnarbúnað almennra lögreglumanna heldur útköllum sérsveitarinnar áfram að fjölga. Það sýnir okkur að stunguvesti og rafbyssur leysa ekki undirliggjandi vandamál. Það er ekki nóg að brynja lögreglumanninn og setja rafbyssu í beltið ef það vantar einfaldlega fólk á vaktina sem hefur líkamlegan styrk og burði til að ráða við verkefnin þegar á reynir. Getur það verið skýringin? Bóknám á kostnað líkamlegs atgervis: Erum við of „jolly“? Hér erum við komin inn á viðkvæmt svæði sem margir veigra sér við að ræða opinskátt. Getur verið að það vanti hreinlega fólk á vaktirnar sem hefur burði og líkamlegt þrek til að takast á við harðasta ofbeldið? Og erum við kannski orðin svo upptekin af því að lögreglan eigi að sýna mýkt og góðvild að við gleymum því hvert grunnstarfið er? Er fólk þá virkilega svo hissa á því að lögreglan njóti ekki sömu virðingar og áður? Við það að lögreglunámið var fært á háskólastig þá grunar mig að umsækjendahópurinn hafi breyst til muna. Núna er ég kominn á jarðsprengjusvæði: Getur verið að kynjapólitíkin hafi veikt lögregluna? Hér er ég komin inn á jarðsprengjusvæði og ég geri mér fulla grein fyrir því. En það verður að þora að spyrja erfiðra spurninga. Í dag er krafan um bóknám og háskólagráðu orðin til þess að margir af þeim sem áður höfðu sýnt starfinu áhuga og hafa kannski fyllilega líkamlega burði og atgervi til þess eiga hreinlega ekki möguleika á inngöngu. Getur verið að við höfum, í leit okkar að ákveðinni kynjasamsetningu og akademískri „mýkt“, rutt úr vegi einmitt þeim hópi sem er best í stakk búinn til að mæta hörkunni á götunni, og að sérsveitin sé þess vegna notuð svona oft til að brúa bilið? Eða er raunveruleikinn einfaldlega sá að heimurinn er orðinn svona gríðarlega harður að almenn lögregla dugar hreinlega ekki lengur, hvernig sem hún er mönnuð? Hausinn og líkaminn verða að fylgjast að: Auðvitað á lögreglan að vera með hausinn í lagi. Góð menntun, samskiptatækni, lögfræðilegur skilningur og hæfni til að leysa úr flóknum aðstæðum á yfirvegaðan hátt er gríðarlega mikilvæg. En hún verður líka að hafa líkamlegt atgervi til að fylgja því eftir. Þegar ofbeldishneigðir glæpamenn sýna enga kurteisi dugar ekkert „jolly“ viðmót eða fallegar ræður. Á götunni gilda nefnilega stundum einföld lögmál eðlisfræðinnar. Ef almennur lögreglumaður stendur frammi fyrir 100 kílóa ofbeldismanni sem ætlar sér að beita ofbeldi þá verður hann að hafa líkamlegt afl, þyngd og þrek til að yfirbuga hann á öruggan hátt. Ef almenningur og undirheimarnir skynja að lögreglumenn á almennum vöktum hafi hreinlega ekki líkamlega burði eða þyngd til að halda aftur af þeim sem stærstir og hættulegastir eru á vettvangi, þá hrynur virðingin hratt. Þegar almenna lögreglan hefur ekki líkamlega yfirburði til að klára erfiðar handtökur sjálf, eykst þörfin á að kalla til sérsveitina. Sérsveitin sem heldur úti vægðarlausum líkamlegum kröfum og býr yfir þeim líkamlega styrk sem þarf stendur þá eftir sem eina deildin sem getur beitt hinu hreina, harða afli. Þörfin á slíku viðbragði virðist vera að færast mjög í vöxt hér á landi miðað við fréttaflutning og tölfræðina, og þá sér í lagi þegar horft er til umsvifa skipulagðra glæpasamtaka hér á landi. Auðveld bráð: Orðsporið smitast út fyrir landsteinana Þessi mynd af löggæslunni og réttarkerfinu spyrst út eins og eldur í sinu á meðal skipulagðra glæpasamtaka erlendis. Það er engin tilviljun að íslensk fangelsi fylltust á tímabili af erlendum föngum. Þótt stjórnvöld reyni nú að bregðast við því með því að vísa erlendum afbrotamönnum úr landi eftir aðeins þriðjung af afplánuninni, þá sendir það líka út skringileg skilaboð: Ef þú brýtur af þér hér, sleppurðu fljótt út og færð ókeypis flugmiða heim. Þessi skipulögðu glæpasamtök hugsa rökrétt: „Á Íslandi eru litlar afleiðingar afbrota, refsingar vægar og almenna lögreglan fáliðuð, en ávinningurinn er gríðarlegur.“ Þegar þessi skilaboð berast út fáum við hingað hættulega einstaklinga sem svífast einskis. Við sjáum það á þeirri þróun sem á sér stað í dag. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að þessi sömu skipulögðu glæpasamtök séu farin að flytja inn kókaín í hundrað kílóa sendingum með gámum, skipum eða húsbílum. En það teygir sig mun lengra en það. Þessi sömu samtök standa nú í stórfelldri ræktun fíkniefna hér á landi. Hér starfa skipulagðir mansalshringir, hvort sem er í formi vinnumansals eða í vændi, svo ekki sé minnst á stórtæk þjófagengi sem skipuleggja ránsferðir sínar kerfislega um landið. Miðað við þá gífurlegu eftirspurn og neyslu fíkniefna sem er alltaf að verða sterkari og fréttir sýna að sé hér á landi, hvað skyldi lögreglan í raun ná að leggja hald á mörg prósent af því sem flæðir inn eða er framleitt hér? Talið er að lögregla og tollyfirvöld nái jafnan aðeins litlu broti af því magni sem fer á markaðinn. Afgangurinn fjármagnar þessa starfsemi sem almenna lögreglan á svo erfitt með að halda aftur af. Kerfið er á hliðinni: Rannsóknir dragast og fangelsin eru stútfull Vandamálið takmarkast ekki bara við það sem gerist á götunni. Það er orðið tímabært að við setjumst niður og ræðum í alvöru hversu vægt og veikburða kerfið okkar er í heild sinni og ekki síst hjá ungum afbrotamönnum. Hvernig á fólk að bera virðingu fyrir þessu þegar hrottaleg mál eins og nauðgunarmál þar sem fólki er byrlað á skemmtistöðum taka bráðum á annað ár í rannsókn hjá lögreglunni vegna undirmönnunar? Eða hver er skýringin á þeim gríðarlega drætti? Eins getum við ekki horft fram hjá rannsókninni á brunanum á Stuðlum, þar sem unglingsdrengur á átjánda ári lést? Aðstandendur og almenningur standa eftir spyrjandi á meðan kerfið mætir harmleikjum af þessari stærðargráðu með skriffinnsku og seinagangi. Fólk hefur einfaldlega ekki lengur trú á þessum endalausu vægu dómum, hægfara rannsóknum og því algjöra úrræðaleysi sem blasir við. Til að kóróna allt saman eru fangelsin okkar hreinlega stútfull. Biðlistar eftir því að fá að afplána dæmda refsingu eru orðnir fáránlega langir. Við getum hreinlega ekki látið það viðgangast lengur að fórnarlömb bíði mánuðum og árum saman eftir réttlæti á meðan dæmdir eða kærðir ofbeldismenn ganga lausir í samfélaginu vegna þess að það er ekki pláss fyrir þá í fangelsunum eða þeim tekst hreinlega að flýja land og stinga af til „Jórdaníu“ á meðan þeir bíða eftir dómi eða fara í afplánun. Með þessu dregur ekki aðeins úr trausti almennings heldur sendum við hættuleg tvöföld skilaboð til skipulagðra glæpasamtaka. Við erum að segja: „Við erum með flotta löggæslu á pappírum og fínar gráður, en við höfum hvorki mannskap til að rannsaka glæpina ykkar á manneskjulegum tíma, líkamlegan styrk á götunum til að sýna ykkur hörku, né fangelsispláss til að halda ykkur inni þótt þið verðið dæmdir.“ Niðurstaða: Plástur á brotið kerfi? Fjölgun útkalla sérsveitarinnar er ekki tilkomin af engu, held ég. Hún er rökrétt afleiðing af þróun þar sem við höfum svelt almennu lögregluna, breytt inntökukröfum hennar á kostnað líkamlegs atgervis, held ég, eða harkan er orðin meiri, dregið rannsóknir á alvarlegum brotum á langinn og sýnt vægð í refsingum á sama tíma og fangelsin eru sprungin og skipulögð glæpasamtök dæla inn eiturlyfjum í hundrað kílóa vís, reka mansalshringi og skipuleggja þjófnað hernaðarlega. Með því að senda sérsveitina í sífellt fleiri hversdagsleg verkefni erum við að setja dýran plástur á djúpt og opið sár. Stunguvesti og varnarvopn í belti almennra lögreglumanna leysa hvorki mönnunarhæfni né plássleysið í fangelsunum. Ef við viljum ekki sjá samfélag þar sem vopnuð sérsveit er fastur punktur á götum úti til að verja fáliðaða og líkamlega veikburða lögreglu, verðum við að þora að ræða raunveruleikann eins og hann er og styrkja grunninn: almennu löggæsluna og réttarkerfið í landinu. Það er komið nóg af tvöföldum skilaboðum. Höfundur er áhugamaður um betra samfélag, ráðgjafi til áratuga og starfsmaður Fjölsmiðjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Lögreglan Fíkniefnabrot Smygl Mansal Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun