I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 24. október 2026 10:02 Ráðherra segir breytinguna einfalda en vísar sífellt til skýringa sem eiga eftir að koma. Traust á framkvæmdinni verður ekki byggt á loforðum um skýringar síðar. -Hún boðar aukið gagnsæi en skólafólk bíður enn eftir skýrum forsendum. -Hún vill tryggja samræmi milli skóla en hefur ekki sýnt hvernig nýir tölustafir eiga að tryggja sambærilegt námsmat. -Hún segir að aðeins eigi að skipta bókstöfum út fyrir tölur en boðar um leið umfangsmiklar breytingar á aðalnámskrá. -Hún segir að ekki sé verið að endurvekja gamla einkunnakerfið en notar dæmi úr því til að útskýra hið nýja. -Hún kallar eftir trausti en gerir lítið úr faglegri gagnrýni. Fyrst ákvörðunin, svo samráðið og loks útskýringin Og á meðan ráðuneytið vinnur að því að skýra breytingarnar er skólum ætlað að undirbúa innleiðingu þeirra. Það er ekki hægt að lýsa framkvæmdinni sem einfaldri, segja forsendurnar skýrar og ætlast síðan til þess að öll bíði eftir því að þær verði útskýrðar. Ráðherra getur kallað þetta einfalt eins oft og hún vill. Það gerir framkvæmdina hvorki skýrari né faglegri. Þegar ráðuneytið hefur kynnt einn kvarða, breytt honum og vísar síðan til reglna sem enn eru í vinnslu er kominn tími til að hætta að afgreiða gagnrýnina sem misskilning. Ráðuneytið ætlar að eyða óvissu um námsmat með breytingum sem það hefur sjálft enn ekki tekist að útskýra. Allt á hreinu. Nema það sem skiptir máli Það er orðið býsna sérstakt að fylgjast með umræðunni um nýjan einkunnakvarða við lok grunnskóla. Menntamálaráðherra segir markmiðið afskaplega einfalt; að skipta bókstöfum út fyrir tölustafi, auka gagnsæi og tryggja meira samræmi milli skóla. Allt eru þetta góð og gild markmið. En eftir því sem ráðherra útskýrir málið meira vakna fleiri spurningar um hvernig þetta eigi að ganga upp. Hversu oft þarf að breyta skýrri ákvörðun? Í ágúst kynnti ráðuneytið nýjan einkunnakvarða frá 1 til 10 með ítarlegum hæfnilýsingum. Skólafólk hófst handa við að kynna sér breytingarnar og undirbúa framkvæmdina. Í október kom svo ný útfærsla þar sem lokaeinkunnir skyldu vera frá 4 til 10. Nú er okkur sagt að bíða eftir frekari breytingum á aðalnámskrá og leiðbeiningum sem eiga að skýra framkvæmdina. Á meðan líður skólaárið og stefnt er að því að taka nýja kerfið upp hjá nemendum í 10. bekk næsta vor. Samráðið hefur ekki skilað þeirri sameiginlegu niðurstöðu sem nauðsynleg er fyrir svo umfangsmiklar breytingar. Það að kynna niðurstöðu er ekki samráð. Ráðherrann hefur svörin. Spurningarnar eru vandamálið. Í útvarpsviðtali lagði ráðherra ríka áherslu á hversu einföld breytingin væri. Þegar spurt var hvernig ætti að greina á milli einkunna og meta hæfni nemenda varð skýringin hins vegar flóknari. Þar komu við sögu lokapróf, ritgerðir, skyndipróf, prósentuhlutföll og vægi verkefna. En hvernig tryggjum við að kennarar í ólíkum skólum meti sömu hæfni með sambærilegum hætti? Hvað skilur í raun á milli 7, 8, 9 og 10? Þessum spurningum þarf enn að svara með skýrum og sameiginlegum viðmiðum. Það vekur sérstaka athygli að ítrekaðar skýringar ráðherra hafa ekki varpað ljósi á þessar grundvallarspurningar. Dæmi um próf, verkefni og vægi þeirra segja okkur lítið um hvernig tryggja eigi samræmi í mati á hæfni nemenda milli skóla. Málflutningurinn þarf að byggjast á skýrum faglegum forsendum fremur en almennum fullyrðingum um einfaldleika breytinganna. Bókstafir út. Ringulreið inn. Ráðuneytið hefur sjálft birt gögn sem sýna verulegan mun á einkunnadreifingu milli grunnskóla. Það er full ástæða til að bregðast við þeim vanda. En bókstafirnir valda ekki ósamræminu. Það ræðst af því hvernig hæfni er skilgreind, metin og túlkuð. Við getum skipt öllum bókstöfum landsins út fyrir tölur án þess að bæta nokkuð samræmið ef matsforsendurnar verða áfram ólíkar milli skóla. Traust fæst ekki með tilskipun Það vekur líka athygli þegar ráðherra vísar gagnrýni skólafólks til háværs minnihluta. Samráði um málið var að ljúka í samráðsgátt og samkvæmt samantekt á athugasemdunum eru um 90% þeirra gagnrýni á undirbúning og framkvæmd breytinganna. Faglegar athugasemdir verða hvorki réttari né rangar eftir því hversu margir koma þeim á framfæri. Þeim þarf að svara efnislega. Kennarar og skólastjórnendur sem óska eftir skýrum fyrirmælum, raunhæfum undirbúningstíma og samræmdum matsviðmiðum eru að sinna faglegri ábyrgð sinni. Ég tel tímabært að kennarar og skólastjórnendur taki skýra og sameiginlega afstöðu gegn þessum vinnubrögðum og krefjist þess að innleiðingu verði frestað þar til faglegar forsendur og framkvæmd liggja fyrir. Það er ekki samráð að leyfa fólki að tjá sig og gera svo ekkert með það enda búin að ákveða niðurstöðuna. Innleiðing fyrst, útfærslan síðar Ráðherra segir að markmiðið sé skýrt og að framkvæmdin verði útskýrð þegar breytingar á aðalnámskrá liggja fyrir. Þá vaknar eðlilega spurningin hversu einföld breytingin geti verið ef hún kallar jafnframt á breytingar á aðalnámskrá.? En hvers vegna er þá svo mikil áhersla lögð á að innleiða breytingarnar á yfirstandandi skólaári áður en öllum grundvallarspurningum hefur verið svarað? Það er vel hægt að styðja markmiðið um skýrara og réttlátara námsmat og gagnrýna um leið undirbúninginn. Raunar ætti það að vera sjálfsagt. Við þurfum ekki enn eina útgáfu af einkunnakvarða til að geta sagt að eitthvað hafi breyst. Við þurfum sameiginlegan skilning á því hvað einkunnir merkja og hvernig þær eru ákveðnar. Ráðherra hefur ítrekað sagt að breytingin sé einföld. Nú er kominn tími til að sýna það í verki með skýrum matsviðmiðum, raunhæfri innleiðingu og faglegu samráði. Þangað til er einfaldleikinn fyrst og fremst fullyrðing ráðherra en ekki veruleiki skólasamfélagsins. Að lokum; er mikilvægara að ráðherra fái sínu framgengt eða að nemendur landsins fái það menntakerfi sem þeir eiga skilið? Höfundur er kennari og skólastjórnandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmar Bogi Hafliðason Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar