Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. júlí 2026 08:26 Herdís Gunnarsdóttir er forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Vísir/Lýður Valberg Tæplega helmingur fósturheimila, þar sem á annað hundrað börn dvelja í fóstri, hefur ekki fósturleyfi. Í einhverjum tilfellum sendu barnaverndarþjónustur börn á heimili án þess að senda beiðni til yfirvalda.
Í kjölfar umfjöllunar um Bakkakotsmálið, þar sem kom í ljós að drengir sem dvöldu þar urðu fyrir ofbeldi af hálfu fósturforeldris, réðst Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) í úttekt á fósturheimilum sem barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna hafa komið börnum í fóstur. Úttektin var birt í gær á síðu GEV. Alls voru 436 börn í fóstri á 290 fósturheimilum þegar ráðist var í úttektina. 46 prósent heimilanna eru ekki með fósturleyfi en leyfið er forsenda þess að geta talist fósturheimili. 164 börn eru í fóstri á þessum heimilum, eða 38 prósent allra barna í fóstri. Vistuð án þess að hafa leyfin Reifað er í úttektinni að líklegt sé að hluti þeirra sem eru ekki með fósturleyfi séu þeir sem höfðu áður ótímabundið leyfi frá Barnaverndarstofu en slík leyfi féllu úr gildi í árslok 2024. Þess í stað þarf að sækja um leyfi á fimm ára fresti til að vera fósturforeldri. Það var ábyrgð barnaverndarþjónustu að tilkynna fósturfjölskyldum um breytinguna á leyfum. „Í einhverjum tilfellum hafa barnaverndarþjónustur samið beint við aðila um vistun án þess að fylgja lögbundnu verklagi um að senda beiðni um fósturheimili til Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) áður en barn fer á fósturheimili og velja fósturforeldra úr hópi þeirra sem eru á skrá BOFS yfir fósturleyfishafa í samráði við BOFS,“ segir í úttektinni. Barnaverndarþjónustan hafi þá ekki aflað staðfestingar á leyfum áður en vistunin hefst. Töluverður misbrestur hjá barnavernd Samkvæmt gögnum sem GEV fékk lítur út fyrir að um helmingur barnaverndarþjónustu hafi uppfyllt skyldur um lágmarksfjölda eftirlitsheimsókna. Þrátt fyrir það reyndist í mörgum tilfellum ekki hægt að staðfesta að skilyrði slíkra heimsókna hafi verið uppfyllt vegna ófullnægjandi skráningar. Töluverður misbrestur var á fullnægjandi skráningu heimsókna. Þá kemur fram að barnaverndarþjónustur virðast ekki skilja að fullu hvað teljist vera eftirlitsheimsókn. Þá sé ekki að öllu leyti ljóst hvaða kröfur séu gerðar til þeirra varðandi eftirlit með börnum í fóstri en GEV hefur komið þeirri ábendingu til mennta- og barnamálaráðuneytisins sem fer með þessi málefni. „Samtöl við ungmenni sem eru eða hafa verið í fóstri benda til þess að eftirlitsheimsóknir til þeirra hafi í mörgum tilfellum verið mun færri en lagaskyldan kveður á um og var áberandi að tíðni heimsókna fækkaði verulega eftir því sem þau urðu eldri,“ segir í úttektinni. Meirihluti þeirra treysti ekki starfsmanni barnaverndar og algengt var að þau hefðu upplifað takmörkuð tækifæri til raunverulegs einkasamtals. Þurfi að endurskoða verklag Lögð eru fram tilmæli um úrbætur hjá barnaverndarþjónustum landsins. Til að mynda þarf að tryggja verklag svo GEV og BOFS fái alltaf tilkynningar um gerð fóstursamnings og lok fósturs, tryggja að börn séu ekki vistuð hjá þeim sem hafa ekki tilskilin leyfi og koma á verklagi sem tryggir að í öllum tilfellum sé beiðni um fósturheimili send til BOFS áður en barnið fer á heimilið. Þá þurfi að endurskoða verklag sem kemur að skráningu upplýsinga og gagna vegna eftirlitsheimsókna á fósturheimili og upplýsa börn í fóstri á barnvænan hátt um mál sín svo þau geti betur tjáð skoðanir sínar við meðferð máls. Úttektina má lesa í heild sinni hér.
Fósturbörn Börn og uppeldi Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira