Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. júlí 2026 14:06 Óli Rúnar Jónsson er framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar. Vísir/Samsett Óli Rúnar Jónsson framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar tekur upp hanskann fyrir „lite“-bjórinn sívinsæla og segir næringafræðing sem gagnrýndi vöruflokkinn á dögunum fara með rangfærslur um „lite“-bjóra og bjórsölu almennt.
Fréttastofa ræddi á dögunum við Elísabetu Reynisdóttur næringafræðing varðandi „lite“-æði Íslendinga. Nýir bjórar af þessari tegund hafa notið mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar og spretta upp með reglulegu millibili. Til að mynda fékk Ölgerðin í fyrra leyfi til að brugga sérstakan Tuborg Lite sem þekkist ekki í Danmörku. Elísabet Reynisdóttir sagði að verið væri að markaðssetja þar sem vandamálið er. Verið væri að telja þjóðinni trú um að neysla á „lite“-bjórum sé hollari. Þeir séu vissulega með færri hitaeiningar en hefðbundnir bjórar en séu samt sem áður bjór. „Þetta eru bara enn og aftur markaðsöfl sem eru að fífla okkur,“ sagði hún. Tvær vörur keyri vöxtinn Óli Rúnar framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir það misskilning að fólk sem drekki bjóra af þessu tagi drekki fyrir vikið meira af bjór. Áfengisneysla hafi dregist saman á síðustu árum. „Íslendingar drekka færri bjórlítra en aukreitis inniheldur „lite“-bjór að jafnaði minna áfengismagn en aðrir bjórar sem væntanlega telst jákvætt út frá lýðheilsusjónarmiði. Áhersla á hollustu og vellíðan hefur verið vaxandi meðal almennings svo árum skiptir og ég trúi því að við Íslendingar höfum aldrei verið upplýstari um næringu og hollustu en nú,“ segir hann. Við þetta bætir hann að það sé síður en svo meginreglan að sala á flestum „lite“-bjórum sé í miklum vexti. Vöxturinn sé aðallega keyrður af tveimur vörum svo einhverju muni: Gull Lite og Bola X. „Ef þú hinsvegar leggur saman söluþróun allra annarra „lite“-bjóra þá er staðreyndin sú að þeir hafa minnkað verulega í sölu á sama tíma,“ segir Óli Rúnar. „Bruggmeistarar Ölgerðarinnar hafa lagt gríðarlegan metnað í þróun á gæðum við bruggun á kolvetnaskertum bjórum, en þess má geta að Gull Lite hefur hlotið fjölda erlendra viðurkenninga fyrir framúrskarandi gæði. Veruleg vinna liggur að baki þessari gæðaþróun undanfarin ár og tel ég hana meginástæðu vinsælda Gull Lite og Bola X, og þar með flokksins í heild,“ segir hann. „Það er margt skemmtilegt að gerast í flokkinum þessa daganna og má ég til með að minnast á nýjan Kalda Lite sem dæmi og Lite-pylsubjórinn frá RVK-brugghúsinu sem kemur í einhverjum skemmtilegustu umbúðum sem ég man eftir.“ Hollara að drekka minna Sömuleiðis gildi afdráttarlausar og skýrar reglur um „lite“-merkingu á matvælum. Slíkar vörur skulu innihalda að minnsta kosti 30 prósent færri hitaeiningar en sambærilegar vörur. „Eftir situr þá eitt sem við Elísabet erum sammála um: það er oft á tíðum hollara að borða og drekka minna.“
Áfengi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira