„Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 13. júlí 2026 22:15 Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, sá sína menn skora þrjú lögleg mörk en fá aðeins tvö þeirra dæmd gild. Vísir/Viktor Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur við stórar dómaraákvarðanir sem féllu liði hans í óhag eftir 2-1 tap fyrir Breiðabliki í 14. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld.
Rangstaða var ranglega dæmd á Marin Mudrazija þegar hann virtist vera að koma Keflavík í 0-2 í fyrri hálfleik og þótti honum dæmt brot á Eið Orra Ragnarsson fyrir litlar sakir þegar hann var kominn í dauðafæri undir blálokin og hefði getað jafnað í 2-2. „Þetta var gríðarlega svekkjandi. Ég upplifði leikinn þannig að við spiluðum mjög vel í dag. Við verðskuldum alls ekki að tapa þessum leik. Við erum ofan á í löngum hluta leiksins og skorum löglegt mark í 2-0 þar sem er dæmd rangstaða á einhvern ótrúlegan hátt. Ég skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki. Þetta er bara magnað. En ókei. Seinni hálfleikur, við komum mjög grimmir og aggressívir út í hann með góða pressu. Við sköpum okkur góðar stöður til þess að komast í 2-0. Við getum svo sem sjálfum okkur um kennt þar að gera ekki betur í þeim stöðum sem við vorum komnir í. Svo held ég nú að það sé nú heldur aldrei brot á Eið hérna í lokin. Ég held að Kiddi [Kristinn Jónsson] sparki nú í Eið en hann er klókur og lætur sig detta,“ sagði Haraldur í samtali við Sýn Sport eftir leikinn. 2-0 staða er helmingi betri Taldi hann fullvíst að leikurinn hefði þróast á annan veg hefði Keflavík verið tveimur mörkum yfir í leikhléi. „Já, ég meina það er klárt að mörk breyta leikjum. 2-0 staða er helmingi betri en 1-0 þannig að það hefði verið betra að fara með 2-0 inn í hálfleikinn. Það er klárt mál,“ sagði Haraldur, sem var þó ánægður með frammistöðu sinna mann. „Ég er mjög ánægður með vinnuframlagið og það sem við leggjum í leikinn. Í raun og veru spiluðum við fínan fótboltaleik, sköpuðum okkur alveg nóg og vörðumst vel. Þeir jafna á okkur þegar við erum einum færri, Mudri þarf að fara út af í eina mínútu. En þetta er bara fótboltinn, svona er þetta,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson að lokum í samtali við Sýn Sport.
Besta deild karla Keflavík ÍF Breiðablik Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira