Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Gunnar Egill Daníelsson skrifar 13. júlí 2026 22:06 Jónatan Guðni Arnarsson skoraði mikivægt mark í kvöld. Sýn Sport Jónatan Guðni Arnarsson, 19 ára kantmaður Breiðabliks, var hæstánægður eftir 2-1 sigur á Keflavík í Bestu deildinni á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld. Í leiknum skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik og um leið fyrsta mark í efstu deild. „
Tilfinningin er frábær. Þetta var fyrsta markið mitt, mikilvægt mark. Það er geggjað að fá að skora fyrsta markið sitt hérna á heimavelli og það var líka flott mark. Tilfinningin er mjög góð,“ sagði Jónatan Guðni í samtali við Sýn Sport eftir leikinn. Markið, sem var jöfnunarmark á 57. mínútu, var sannarlega glæsilegt; skot vinstra megin úr vítateignum sem flaug upp í bláhornið fjær. Jónatan sagði leikinn hafa verið erfiðan. „Já, 100 prósent. Mér fannst við byrja leikinn ágætlega og vorum alveg að hóta en svo eftir markið þeirra þá varð þetta dálítið kæruleysislegt. Svo í seinni hálfleik fannst mér við koma virkilega sterkir inn og náum inn marki. Eftir það fannst mér við eiginlega eiga leikinn,“ sagði Jónatan Guðni. Meiddur eiginlega allt tímabilið Nokkuð erfitt hefur reynst fyrir hann að koma sér almennilega af stað á tímabilinu enda hefur hann mikið glímt við meiðsli en nú horfir til betri vegar. „Já, ég er búinn að vera meiddur eiginlega allt tímabilið og það er geðveikt að vera nýkominn úr meiðslum og ná marki inn,“ sagði Jónatan „Mér líst virkilega vel á framhaldið. Við erum komnir í úrslit í bikarnum með þrjá sigra í röð. Okkur líður virkilega vel núna,“ sagði Jónatan Guðni Arnarsson að lokum í samtali við Sýn Sport.
Besta deild karla Breiðablik Keflavík ÍF Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira