„Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ Hjörvar Ólafsson skrifar 12. júlí 2026 23:23 Chris Brazell var jákvæður í garð leikmanna sinna og frammistöðunnar þrátt fyrir tapið. Mynd/Valur Chris Brazell, þjálfari Vals, telur að spilamennska Valsliðsins sýni að liðið sé á leið í rétta átt þrátt fyrir að það hafi lotið í lægra haldi fyrir FH í kvöld. Chris var sérstaklega sáttur við hugarfarið í fyrri hálfleiknum og spilamennskuna í fyrri hluta seinni hálfleiks. „
Við erum svekktir með þessa niðurstöðu. Mér finnst strákarnir eiga meira skilið miðað við hvað þeir lögðu í leikinn og hvernig frammistaðan var. Hugarfarið var gott í fyrri hálfleik og spilamennskan í fyrri hluta seinni hálfleiks var mjög góð að mínu mati,“ sagði Chris Brazell, þjálfari Vals, vonsvikinn eftir leik. „FH gerði vel í að auka orkustigið þegar leið á seinni hálfleikinn og við áttum í erfiðleikum með að ráða við kraftinn í þeim undir lokin. Þeir refsuðu okkur með hraða sínum og krafti og eiga hrós skilið fyrir það,“ sagði Chris þar að auki. „Mér fannst þessi leikur sýna að við séum að þróast í rétta átt. Eins og staðan er núna þá er tilfinningin eins og það sé allt á móti okkur, sem er að sjálfsögðu ekki rétt. Við ráðum auðvitað okkur eigin örlögum sjálfir,“ sagði hann. „Hafandi sagt það þá er fullt af jákvæðum hlutum sem við getum tekið út úr þessum leik. Við spiluðum góðan fótbolta en náðum ekki að nýta stöðurnar og færin þegar á hólminn er komið. Það virðist vera lítið sjálfstraust í liðinu eins og staðan er núna en við munum vinna okkur út úr þessu,“ sagði Chris upplitsdjarfur þrátt fyrir tapið.
Íslenski boltinn Besta deild karla Valur Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira