Innlent

Kærir Iðufólk fyrir líkams­árásir, þjófnað og hótanir

Jakob Bjarnar skrifar
Esther Guðnónsdóttir formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðfélags Árnesinga lýsir ótrúlegum atgangi í tengslum við veiðirétt við Iðu, sem er á mörkum Stóru-Laxár og Hvítár. Hún segir deiluna fyrir löngu komin út yfir öll velsæmismörk.
Esther Guðnónsdóttir formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðfélags Árnesinga lýsir ótrúlegum atgangi í tengslum við veiðirétt við Iðu, sem er á mörkum Stóru-Laxár og Hvítár. Hún segir deiluna fyrir löngu komin út yfir öll velsæmismörk. aðsend

Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra.

Landamerkjadeilur hafa löngum verið hatrammar á Íslandi en þessi deila virðist komin út yfir allan þjófabálk.

Grein Estherar er ítarleg en þar segir hún að Iðufólk hafi kosið að virða að vettugi samþykktar leikreglur, lög og reglur um lax- og silungsveiði og sýnt af sér fullkomið skeytingarleysi gagnvart til að mynda ákvörðun Ósamatsnefndar. Þá sakar Esther Morgunblaðið um að flytja einhliða fréttir af gangi mála, hvar dreginn er taumur Iðufólks og ekki hafi það einu sinni leitað andstæðra sjónarmiða þó að þar sé verið að greina frá kærum á hendur Finni.

Ólafur E. Jóhannsson hefur fjalað mjög um þessa deilu á síðum Morgunblaðsins. Í síðustu fréttaskýringu greinir hann frá því að Landeigendur að Iðu 1 og Iðu 3 í Bláskógarbyggð hafi lagt fram kæru á hendur Finni Harðarsyni og Ólafi Marteinssyni, auk þess sem farið hefur verið fram á nálgunarbann á hendur Finni. Umfjöllunin varð til þess að Finnur kærir nú á móti.

Ester segir ganga á með kærumálum með óheyrilegum kostnaði fyrir samfélagið en 25 kærur á hendur Finni hafi verið felldar niður.

„Sá raunveruleiki blasir nú við okkur að einstaka aðilar að þessari deilu virðast hafa greiðan aðgang að fjölmiðlum – og þá helst einum tilteknum. Sá fjölmiðill hefur fjallað mikið um deiluna en látið það algjörlega ógert að kalla eftir annarri hlið en Iðufólks.“

Hrottalegar lýsingar á atganginum

Og Esther heldur áfram: „Fréttaflutningur sá hefur verið algjörlega einhliða – og ósanngjörn mynd ítrekað dregin upp af leigutaka Stóru-Laxár á síðum þess fjölmiðils,“ segir Esther áður en hún víkur að atganginum sem hlýtur að varða við lög.

„Raunin er sú að leigutakinn hefur, í tengslum við þessar deilur, verið beittur ofbeldi og hann laminn svo á honum sá – og sú árás er til á myndbandi. Brotist hefur verið inn í bifreið hans og símanum hans stolið. Skorið hefur verið á dekk undir bíl undirritaðrar og pílur fjarlægðar úr dekkjum á bíl leigutaka. Þá barst undirritaðri símtal þar sem leigutaka var hótað lífláti og honum hótað heimsóknum handrukkara. Enn fremur fengu undirrituð, leigutaki og lögmaður okkar nafnlaus bréf með dularfullu dufti inn um bréfalúgur okkar.“

Árásirnar verða kærðar

Esther segir að deilan sé fyrir lifandis löngu komin langt út fyrir öll velsæmismörk.

„Innansveitarkrónikan er fyrir löngu orðin að harmleik fyrir alla aðila málsins og er nú farin að hafa neikvæð áhrif langt út fyrir rekstur Stóru-Laxárdeildar. Svo ekki sé minnst á kostnaðinn, tímann og orkuna sem leggst á hið opinbera sem rannsaka þarf hverja tilhæfulausa kæruna á fætur annarri. 

Finnur Harðarson leigutaki Stóru-Laxár. Honum er brugðið og eftir fréttaflutning Morgunblaðsins, sem hann segir ósannan og einhliða, hefur hann tekið ákvörðun um að kæra hótanir og líkamsárásir. Hann segist eiga gögn sem styðji mál hans og myndbandsupptöku af árás sem hann hefur mátt sæta.facebook

Sýn Stóru-Laxárdeildar á málið er nú sú að veiðar Iðufólks séu ólöglegar samkvæmt nýju ósamati. Gríðarlegur skaði hefur þegar verið unninn með þeim ólöglegu veiðum og óvæginni, einhliða og ósanngjarnri fjölmiðlaumfjöllun,“ segir Esther meðal annars í grein sinni.

Vísir hafði samband við Finn og hann sagði að Hilmar Gunnarsson, lögmaður á Mörkinni, hefði kærur í vinnslu og hann gerir ráð fyrir því að þær verði lagðar fram. „Eftir einhliða og rangar frásagnir Iðufólks í Morgunblaðinu var tekin ákvörðun um að kæra,“ segir Finnur.

Finnur segir að sér sé brugðið: „Lögreglan kom á staðinn og tók mynd af áverkunum.“


Tengdar fréttir

All­svaka­legt laxa­dráp á veiði­svæði Iðu

Finnur Harðarson, umsjónarmaður Stóru Laxár, á í stökustu vandræðum með veiðimennskuna eins og hún er stunduð á Iðu I og Iðu II. Þar ríkir villta vestrið, að hans sögn.

Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt

Eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð hafa fengið leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar í deilu um vegslóða til réttarins. Málið er einn angi mikilla deilna landeigenda við leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá.

Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá

Þeir sem bera hag Norður-Atlantshafslaxins fyrir brjósti biðla nú til þeirra sem enn stunda netaveiði í Ölfusá að hlífa því sem eftir lifir stofns í stærsta ferskvatnakerfi í Evrópu. Þeir segja þetta ljótan blett á orðspori Íslands og laxinn sé í útrýmingarhættu. Sveitin er klofin. Jörundur Gauksson lögmaður, formaður í Veiðifélagi Árnessýslu, stendur hins vegar fastur fyrir og á sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×