Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. júlí 2026 07:17 Starmer, sem er nú fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, segist vilja sjá „evrópskara“ Atlantshafsbandalag. Getty/Alastair Grant Tólf Evrópuríki hyggjast taka saman höndum og verja 37 milljörðum punda á næstu tíu árum til að smíða nýja langdræga eldflaug. Frá þessu greindu stjórnvöld á Bretlandseyjum, sem fara fyrir verkefninu en það verður til umræðu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara í Tyrklandi í dag.
Eldflaugin er sögð munu geta hitt skotmörk í allt að 300 kílómetra fjarlægð af mikilli nákvæmni en heildardrægi hennar gæti orðið allt að 2.000 kílómetrar. Verkefnið ber yfirskriftina Deep Precision Strike. Keir Starmer, sem situr í dag sinn síðasta Nató-fund sem forsætisráðherra Bretlands, segir verkefnið munu sameina bandamenn í Evrópu í átaki til að tryggja öryggi Nató um ókomna framtíð. Starmer segist vilja tryggja öryggi Breta og bandamanna og gera Atlantshafsbandalagið „evrópskara“. Þá segir utanríkisráðherrann Yvette Cooper að það sé viðurkenning á því að heimurinn sé orðinn hættulegri en áður. „Þetta snýst um að tryggja sterkari Evrópu innan sterkara Nató,“ sagði Cooper í samtali við BBC í morgun. Hún sagði um að ræða skýr skilaboð til Vladimir Pútín Rússlandsforseta; bandalagið væri reiðubúið til að verja aðildarríkin frá langtímaógninni sem stafaði frá honum og Rússlandi. Ekki er þó gert ráð fyrir að Deep Strike beri ávöxt fyrr en einhvern tímann á næsta áratug.
NATO Bretland Hernaður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira