Atvinnulíf

Segðu Já í vinnunni og það strax!

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Við vitum aldrei hvaða tækifæri geta opnast fyrir okkur í starfi með því að segja Já við nýjum verkefnum, tækifærum eða fólki. Það styðja rannsóknir og sagan sem við heyrum um í dag.
Við vitum aldrei hvaða tækifæri geta opnast fyrir okkur í starfi með því að segja Já við nýjum verkefnum, tækifærum eða fólki. Það styðja rannsóknir og sagan sem við heyrum um í dag. Vísir/Vilhelm

Nei, þetta er ekki grein um ESB.

En þetta er grein um það að segja Já til þess að skapa okkur sjálfum fleiri eða stærri tækifæri.

Breski forstjórinn David Savage segir í nýlegri grein í Fast Company að starfsferill hans hafi byggst á einu einföldu orði: „já“. Hann hafi sagt já við verkefnum sem virtust jafnvel lítil eða ómerkileg á sínum tíma.

Sumir vilja jafnvel meina að það að segja Já við leiðinlegum verkefnum eða þeim sem fæstir vilja eða nenna að taka að sér veki jafnvel meiri athygli, aðdáun eða eftirtekt.

Sagan hans er reyndar þrælskemmtileg. Því David Sagage hætti í skóla 16 ára og byrjaði þá að selja banana. 

Tuttugu og eins árs fór hann að keyra leigubíla en þekktastur er hann fyrir að hafa verið forstjóri tæknifyrirtækisins Babble sem um 1100 starfsmenn vinna hjá.

Að það geti margborgað sig að segja Já í vinnunni getur opnað fyrir okkur ótrúlega mörg tækifæri. Ný, spennandi, stór.

Þetta styður meðal annars rannsókn sem náði til tæplega tólf þúsund starfsmanna í 22 löndum. Samkvæmt henni sýna niðurstöður að fólk sem er duglegt að taka frumkvæði að eigin starfsþróun skapar sér fleiri tækifæri og síðast en ekki síst: Það upplifir líka meiri starfsárangur í starfinu sínu.

Þetta er eiginlega algjört win win svo það sé sagt – á slæmri íslensku.

Til að gefa hugmyndir um Já-in er um að gera að vera vel vakandi fyrir því að segja Já við atriðum eins og:

  • Bjóðast til að leysa úr verkefnum – þótt þú þurfir þess ekki
  • Finna verkefni, leita að verkefnum
  • Læra nýja hluti
  • Nýta tækifæri
  • Vera sýnilegri
  • Taka þátt í teymisvinnu, umræðum og svo framvegis.
  • Efla tengslanet

En það er ekki allt. Því við þurfum líka að vera opin fyrir fólki og opin fyrir nýjum og óvæntum tækifærum.

Við þurfum að þora að segja Já.

Í tilfelli David Sagage gafst stóra óvænta tækifærið þegar hann var að keyra leigubíl. Farþegi, sem var framkvæmdastjóri hjá FORD, spurði hann hvað hann langaði til að gera í framtíðinni en á þeim tíma hafði David ekki séð neitt annað fyrir sér en að halda áfram að keyra leigubíl. Byrjaður að búa, nýorðinn pabbi og jú; lífið kostar.

Farþeganum fannst hann þó greinilega eiga tækifæri á jafnvel einhverju meira og stærra. Og eftir þó nokkurt samtal rétti hann David nafnspjaldið sitt og bað hann um að hafa samband við sig.

David ákvað að segja Já.

Þetta Já leiddi til þess að um tíma starfaði David við það að ferðast um Evrópu og heimsækja starfsstöðvar FORD og fara yfir tölvuskjái og tækjabúnað. Smám saman þróaðist það starf í enn stærra og ábyrgðarmeira hlutverk og koll af kolli.

Ekkert í starfsferlinum var þó skipulagt að hans sögn. Heldur skýrist það einfaldlega af því að David ákvað að segja Já.

Mun eitthvað Já breyta þínu starfi?


Tengdar fréttir

Uppsagnir fram undan og óttinn vex

Það eru engin ný tíðindi að það er kólnun í hagkerfinu. Fréttir hafa verið um uppsagnir og margir vinnustaðir búa sig undir uppsagnir.

„Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“

„Mér fannst guðfræði mest spennandi háskólafagið því hún sameinar fög eins og sagnfræði, sálfræði og heimspeki,“ segir Jónas Margeir Ingólfsson, handritahöfundur, kvikmyndagerðarmaður, framkvæmdastjóri, eiginmaður, faðir, næstum því hestamaður og lögfræðingur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×