Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júlí 2026 10:35 Álagning á bensín og dísel hefur hækkað undanfarin ár. Vísir/Vilhelm Ekki er hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hafi í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði þess samkvæmt nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins. Ýmsum spurningum sé enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar.
Samkeppniseftirlitið hefur birt umræðuskjal um þróun eldsneytismarkaðar hér á landi og áhrif breytinga á opinberum gjöldum og virðisaukaskatti á eldsneyti. Skjalið byggir á ítarlegri gagnaöflun frá olíufélögum og greiningu Samkeppniseftirlitsins á þeim. „Í gögnunum kemur fram að álagning á bensíni og dísel hefur hækkað verulega á síðustu árum og að verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum hafi aukist á síðustu árum. Jafnframt bendir greiningin til þess að fyrri ályktanir Samkeppniseftirlitsins um fákeppnisaðstæður og vísbendingar um þegjandi samhæfingu á eldsneytismarkaði eigi enn við,“ segir í fréttatilkynningu frá eftirlitinu. Eftir að ný lög um virðisaukaskatt og samkeppnislög, sem fela í sér lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, voru samþykkt á Alþingi var Samkeppniseftirlitinu gert skylt að hafa eftirlit með því að lækkunin skili sér til neytenda. Hækkuðu verðið rétt fyrir gildistöku „Greiningin bendir meðal annars til verðhækkana hjá sumum olíufélögum rétt fyrir gildistöku skattalækkunarinnar og hækkandi álagningar eftir 1. maí,“ segir í tilkynningunni. Eftirlitið óskað eftir frekari skýringum frá viðkomandi olíufélögum og mun síðan taka afstöðu til þess hvort tilefni sé til frekari aðgerða. „Þá bendir greiningin til þess að innlent eldsneytisverð hafi fylgt hækkunum á heimsmarkaðsverði betur en lækkunum þess. Að mati Samkeppniseftirlitsins gefur sú þróun, ásamt öðrum niðurstöðum umræðuskjalsins, tilefni til frekari rannsóknar á verðmyndun eldsneytis hér á landi.“ Umræðuskjal_SamkeppniseftirlitsinsPDF5.9MBSækja skjal Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum fyrirtækja, hagsmunaaðila og almennings. Einnig er óskað eftir ábendingum um möguleg brot á samkeppnislögum, aðrar samkeppnishindranir, hindranir af hálfu hins opinbera og hugmyndum að aðgerðum sem gætu stuðlað að virkari samkeppni og lægra eldsneytisverði.
Bensín og olía Samkeppnismál Neytendur Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Sjá meira