Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar 1. júlí 2026 23:03 Að undanförnu hef ég orðið óþyrmilega vör við Þórðargleðina í athugasemdakerfum hinna ýmsu veffréttamiðla. Þetta séríslenska sport að gleðjast yfir óförum annarra. Var Þórður þessi fyrsti virki í athugasemdum? Hann hafði einmitt lesið í Ísafold, fésbók nítjándu aldar, frétt þess efnis að ekki hefði þornað strá hjá kollegum hans fyrir norðan og hvað gerði Þórður, jú hann hló! Nýr borgarstjóri leggur niður heilar deildir í ráðhúsi Reykjavíkur þar sem fjöldi fólks missir vinnuna og her fólks mætir þá á netið og hlakkar yfir óförunum. Hlakkar yfir því að fólk missi lífsviðurværið, gerir lítið úr mikilvægi vinnu þeirra og að það hafi yfirhöfuð verið nokkur tilgangur með henni. Að missa vinnuna er eitt af því erfiðasta sem fólk tekst á við á lífsleiðinni, að búa við fjárhagsóöryggi er gríðarlega erfitt og stressandi. Að beinlínis gleðjast yfir þessu á samfélagsmiðlum er ekki bara glatað heldur argasta ósvinna. Svo virðist sem almannarými samfélagsmiðlanna, eins og Habermas hefði kallað það, sé háð allt öðrum reglum en gengur og gerist í samfélaginu. Á þessu svæði er ónotum hreytt, ljót orð notuð og fúkkyrðum hent hægri, vinstri í minnstu bræður og systur sem hafa það eitt til saka unnið að missa vinnuna. Hlegið upp í opið geðið á þeim og gert lítið úr þeim. Hvað gerðist? Hvað gerir þetta rými svona andstyggilegt? Ferðamenn á hvalaskoðunarbátum verða vitni að því þegar Kristján Loftsson og félagar í Hval sigla með dauða langreyð í land, langreyð sem háði hálftíma dauðastríð. Hvað gerist þá á netinu, þessu frísvæði siðferðislegrar hegðunar? Jú, fólk hópar sig saman og kallar ferðamenn væluskjóður og eflist eðlilega þegar viðhlæjandi vinir taka undir. Fólk æsir hvort annað upp á án þess að hafa nokkurn skilning á því hvað umræðan snýst í raun réttu um. Saklausir ferðamenn attir auri, sem slíkir líkast til meira virði fyrir samfélagið en þessi eini dauði hvalur eins kaldhæðnislega og það hljómar. Og röksemdir allra þessara Þórða? Nú, hvalastofninn er orðinn svo hrikalega stór og íslenska þjóðin þurfi nú einhvern veginn að eiga í sig og á. Hvernig var þetta aftur með hvalveiðarnar, erum við þjóðin að græða allsvakalega á þessum veiðum? Er Kristján að veiða þennan hval til þess að færa okkur bónuskaupandi horgemlingunum salt í grautinn? Ég veit ekki hvort er ömurlegra, öll fáfræðin sem þessar illa skrifuðu, hörmulegu athugasemdir opinbera eða þessi hreina heift sem fólkið dreifir í kringum sig eins og sandi. Sandi sem smýgur inn um allar gáttir, eins og öskulag af ömurð. Ef einhver kæmi inn á kaffistofu og færi að atyrða menn svona yrði stemningin vel súr. Við vitum að fólk færi aldrei þá leið og kýs heldur að varpa fýlusprengjum í stafrænu skjóli. Hugleysið er algert. Jónas Sig. hélt tónleika í Hveragerði fyrir stuttu og sagði þar að það væri nánd sem vantaði í samfélagið og það sem meira er, samtal. Og að við ættum að byrja á okkar nánustu. Ef ekki væri nánd í fjölskyldum hvernig væri hægt að ætlast til þess að hún væri í samfélaginu? Þarna hitti hvergerðíski heimspekingurinn mig í hjartastað, rétt áður en hann söng sig enn frekar inn í hjartað með dásemdarlaginu Hafið er svart. Þetta félagslega rými sem virkir í athugasemdum skapa er svart eins og haf Jónasar. Með athæfi sínu þar gera þeir ekkert annað en að mynda djúpar gjár fullar af heift, tuði og ónotum. Sprungur koma í gæskuna og sjálfsagða virðingu fyrir náunganum. Gæti verið að til þess að hafið verði bjart og friðsælt að við þurfum samtal, nánd og já, knús? Gæti verið að ef ég segi ykkur að á bak við núllin sem stjórnmálamenn segjast vera að spara okkur séu manneskjur? Langreyðurin dauða er ágætis tákn um dauða samúðarinnar á vorum tímum. Starfsmenn Hvals skáru hana upp undir þjóðsöngnum okkar og svívirtu hræið. Glottandi undir þjóðsöngnum, hvers merking er þeim greinilega hulinn. Þar er lífríkið heilaga nefnilega ákallað, viðkvæmni þess undirstrikuð, eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár sem tilbiður Guð sinn og deyr. Höfundur er heimspekilegur leiðsögumaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar