Innherji

Ardian veðjar á nor­ræn gagna­ver með mörg hundruð milljarða fjár­festingu

Hörður Ægisson skrifar
Margir stofnanafjárfestar, sem hafa verið að koma að kaupum á gagnaversfélögum á háum verðmargföldurum, líta á gagnaver sem sambærilegan innviðarekstur og orkuflutningskerfi eða samgöngumannvirki.
Margir stofnanafjárfestar, sem hafa verið að koma að kaupum á gagnaversfélögum á háum verðmargföldurum, líta á gagnaver sem sambærilegan innviðarekstur og orkuflutningskerfi eða samgöngumannvirki.

Franski sjóðastýringarisinn Ardian hyggst fjárfesta fyrir meira en þrjá milljarða evra í gagnaverum og stafrænni innviðauppbyggingu á Norðurlöndum á næstu árum, en undir merkjum Verne Global stendur félagið nú meðal annars að stórum fjárfestingum í gagnaveri sínu á Íslandi. Fjárfestingafélagið veðjar á að samkeppnishæf endurnýjanleg orka, nægt landrými og náttúruleg kæling á Norðurlöndum muni gegna lykilhlutverki til að mæta sívaxandi orkuþörf gervigreindar.


Tengdar fréttir

Ardian hyggst fjór­falda um­svif Ver­ne og leggja gagna­verunum til 163 milljarða

Franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian mun leggja gagnaverum Verne, sem meðal annars er með starfsemi á Íslandi, til 1,2 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 163 milljarða króna, til að vaxa í Norður-Evrópu og fjórfalda þannig umsvifin. Eftir kaupin hefur Ardian, sem á Mílu, fjárfest fyrir jafnvirði um það bil 120 milljarða á Íslandi. „Við erum einn stærsti erlendi fjárfestir á Íslandi og höfum mikla trú á landinu,“ segir framkvæmdastjóri hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×