Sport

Franska lög­reglan vill að Demantamótinu í París verði af­lýst

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marileidy Paulino frá Dóminíska lýðveldinu bregst við eftir úrslit í 400 metra hlaupi kvenna á Demantamótinu í Doha í Katar
Marileidy Paulino frá Dóminíska lýðveldinu bregst við eftir úrslit í 400 metra hlaupi kvenna á Demantamótinu í Doha í Katar Getty/Noushad Thekkayil

Franska lögreglan biður um að demantamóti í frjálsum íþróttum sem fara á fram í París á sunnudag verði aflýst vegna hitabylgju í landinu.

Lögreglan vísar til hins óvenjulega hita sem hefur verið í París síðustu vikuna og segist hafa beðið skipuleggjendur Demantamótsins og annarra viðburða, þar á meðal tónlistarhátíðar og gleðigöngu, um að aflýsa þeim.

Meðal alþjóðlegra stjarna sem áætlað er að taki þátt í mótinu eru Noah Lyles frá Bandaríkjunum, Femke Bol frá Hollandi og Armand Duplantis frá Svíþjóð.

Ekki síðar en á fimmtudag lýstu mótshaldarar því yfir að þeir hygðust enn halda keppnina, en með breyttu sniði.

„Öryggi keppenda, þjálfara, sjálfboðaliða, starfsmanna og áhorfenda er áfram okkar helsta forgangsatriði. Þar af leiðandi munu aðeins afreksíþróttamenn geta tekið þátt í mótinu í París,“ sögðu skipuleggjendur.

Meðalhiti í frönsku höfuðborginni fór yfir 30 gráður á föstudag, annan daginn í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×