Sport

Brott­rekstrar­sök að tapa þessari stöðu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þorsteinn og stelpurnar eiga að afgreiða verkefni dagsins með stæl.
Þorsteinn og stelpurnar eiga að afgreiða verkefni dagsins með stæl. vísir/vilhelm

Krummaskuð eða krummaskurð er eitt af þeim stóru málum sem voru rædd í Besta sætinu í dag.

Stelpurnar okkar eiga landsleik gegn Króatíu á eftir í umspili um laust sæti á HM. Þær eru 4-0 yfir eftir fyrri leikinn og það eru engar afsakanir ef þetta verkefni verður ekki klárað með bravör.

Man. Utd heimsækir Atletico Madrid í Meistaradeildinni og Lille, með Hákon Arnar Haraldsson, innanborðs er að spila við Arsenal í London.

Formúlan er óvænt á leið til Rúanda í Afríku og ástæður þess eru tíundaðar í þættinum.

Svo er rennt yfir balletviðburð ársins sem mun örugglega vekja mikla athygli.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×