Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2026 22:31 Arnar Bjarki Gunnleifsson setti met í leiknum á móti Víkingum á fimmtudagskvöldið. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Arnar Bjarki Gunnleifsson varð næstyngstur til að skora í efstu deild á dögunum en um leið og hann skoraði í öðrum leiknum í röð þá sló hann aldursmetið sem var í eigu Eiðs Smára Guðjohnsen.
Arnar Bjarki, sem er enn bara fimmtán ára gamall, skoraði mark Blika í 4-1 tapi á móti toppliði Víkinga á fimmtudagskvöldið. Hann hafði fjórum dögum áður skorað þriðja mark Blika í 3-1 sigri á KA. Arnari Bjarka tókst ekki að taka metið yfir yngsta markaskorara efstu deildar sem er í eigu KR-ingsins Alexanders Rafns Pálmasonar sem var aðeins 15 ára, eins mánaðar og 3 daga gamall þegar hann skoraði í sigri KR á ÍBV í maí 2025. Arnar varð aftur á móti sá yngsti til að skora í tveimur leikjum í röð í efstu deild karla. Það met átti Eiður Smári Guðjohnsen sem skoraði í tveimur leikjum í röð í upphafi 1994-tímabilsins, nánar tiltekið í sínum öðrum og þriðja leik í efstu deild. Eiður Smári tryggði Valsmönnum fyrst 1-1 jafntefli á móti ÍBV úti í Vestmannaeyjum 26. maí 1994 og skoraði síðan sigurmark liðsins í 1-0 sigri á FH á Hlíðarenda 31. maí 1994. Eiður Smári átti eftir þetta 1994-sumar metin sem sá yngsti til að spila, byrja, skora og senda stoðsendingu í efstu deild en hafði misst öll þau met á síðustu árum. Nú missti hann fimmta metið til Arnars Bjarka. Eiður Smári var aðeins 15 ára, 8 mánaða og 16 daga þegar hann skoraði í öðrum leiknum í röð en í gær var Arnar Bjarki aðeins 15 ára, 7 mánaða og 13 daga gamall þegar hann var á skotskónum í öðrum leiknum í röð.
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira