Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júní 2026 23:10 Auðkýfingurinn Elon Musk missti nýlega stöðu sína sem eini billjónamæringur heims. Það gerðist um tveimur vikum eftir að hann varð sá fyrsti í sögunni. AP Elon Musk, auðugasta manni heims, hefur verið gert að vera vitni undir eið í tveimur fyrirhuguðum hópmálsóknum þar sem hann er sakaður um að hafa svikið kjósendur í óvissuríkjum (e. swing states) fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2024 með því að lofa milljón dollara, ríflega hundrað og tuttugu milljónum íslenskra króna, til þeirra sem ynnu daglega gjafaleiki sína.
Í úrskurði á fimmtudag mælti Susan Hightower, dómari í Austin í Texas, einnig með því að Musk og stjórnmálaaðgerðanefnd hans, America PAC, yrðu krafin svara í einni málsókninni fyrir að hafa blekkt kjósendur til að gefa upp persónugreinanlegar upplýsingar sem hluta af gjafaleiknum. Hún sagði að tengdri kröfu um samningsbrot skyldi vísað frá er segir í umfjöllun sem birt var á vef fréttaveitunnar Reuters. Þar er einnig sagt frá því að lögmenn Musks hafi setið á svörum þegar fréttaveitan óskaði eftir því að ná tali af þeim. Lögmenn stefnenda í báðum málunum hafi sömuleiðis ekki svarað sambærilegum beiðnum eða hafi ekki haft neinar athugasemdir að svo stöddu. Lofaði að vinningshafar yrðu valdir af handahófi Stefnendurnir Joy Harvick og Jacqueline McAferty, báðar frá Arizona, sögðu að Musk og America PAC, íhaldssöm stjórnmálaaðgerðanefnd sem Musk stofnaði í júlí 2024 til að styðja forsetaframboð Donalds Trump og aðra íhaldssama frambjóðendur, hefðu afvegaleitt kjósendur í sjö óvissuríkjum til að skrifa undir áskorun hans til stuðnings stjórnarskrá Bandaríkjanna, með því að lofa að milljón dollara vinningshafarnir yrðu valdir „af handahófi“ eins og í lottói. Þær sögðu að kjósendur hefðu enga raunverulega möguleika á að vinna og, með tilvísun í lögmann Musks, sögðu þær að vinningshafarnir átján hefðu verið valdir vegna þess að þeir „gætu orðið góðir talsmenn“ fyrir America PAC.
Dómsmál Bandaríkin Elon Musk Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira