Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar 25. júní 2026 12:15 Það er sérstakt ánægjuefni, sem formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa, að geta sest niður og skrifað þessi orð. Við Íslendingar höfum stundum verið sökuð um að berja okkur á brjóst og halda því fram að við séum best í heimi. Oft er það sagt í kaldhæðni en stundum er einfaldlega innistæða fyrir stoltinu. Árið 2026 skráð í sögubækur íslenskrar auglýsingagerðar Íslenskar auglýsingastofur hafa aldrei áður hlotið jafn margar tilnefningar né unnið jafn mörg verðlaun á Cannes Lions, einni virtustu hátíð í auglýsinga- og markaðsgeiranum í heimi. Hátíðin er gjarnan kölluð „Óskarsverðlaunahátíð” iðnaðarins og þar keppa bestu hugmyndir, sterkustu vörumerkin og öflugustu auglýsingastofur heims um athyglina. Í ár setti Ísland sögulegt met með þremur tilnefningum og tveimur Ljónum á einni og sömu hátíðinni. Pipar\TBWA leiddi vegferðina með tveimur Ljónum fyrir herferðina ¡Hola! fyrir malbikunarfyrirtækið Colas, mesta árangri sem íslensk auglýsingastofa hefur náð í sögu keppninnar. Hvíta húsið var tilnefnt fyrir herferð sína Iceland: The real unreal fyrir Icelandair sem staðfestir þann styrk sem býr í íslenskri skapandi hugsun. Þetta eru afrek sem vert er að staldra við. Hér erum við að tala um samkeppni þar sem íslenskar stofur mæta fyrirtækjum og auglýsingarisum sem starfa á margfalt stærri mörkuðum en þeim íslenska og búa yfir fjármagni sem við getum vart borið saman við okkar íslenska veruleika. Þrátt fyrir það standa íslenskar hugmyndir jafnfætis þeim bestu í heiminum. Þessi árangur kom ekki af sjálfu sér. Hann byggir á sterkum grunni sem lagður hefur verið yfir áratugi og fékk mikilvæga staðfestingu árið 2024 þegar Brandenburg vann fyrsta alíslenska Cannes Ljónið í sögu landsins fyrir endurmörkunarvinnu á orkudrykknum Egils Orku. Nú höfum við stigið næsta skref og sýnt að sá sigur var ekki einsdæmi heldur merki um nýjan veruleika fyrir íslenskar skapandi greinar í auglýsingageiranum. Það sem þessi verðlaun staðfesta er ekki aðeins hæfni einstakra stofa heldur gæði alls þess vistkerfis sem stendur að baki. Íslensk auglýsingamennska, hönnun, stefnumótun og framleiðsla eru á heimsmælikvarða. Smæð markaðarins hefur kennt okkur að vinna af nákvæmni, vera útsjónarsöm, sveigjanleg og finna lausnir sem skera sig úr. Það sem gæti virst vera veikleiki hefur í raun orðið að styrkleika. Við kunnum að nýta þau tækifæri sem bjóðast hér á eyjunni okkar. Árangurinn verður ekki til í tómarúmi. Á bak við hverja verðlaunaða herferð stendur fjölbreyttur hópur sérfræðinga í sínu fagi: hönnuðir, textahöfundar, kvikmyndagerðarfólk, leikarar, tónlistarfólk, ljósmyndarar, tæknifólk, og framleiðendur. Þetta er öflugt en viðkvæmt vistkerfi sem þarf stöðugt að nærast á verkefnum og tækifærum. Ef við missum þessa sérþekkingu úr landi eða drögum úr innlendri framleiðslu verður samkeppnishæfni okkar minni. Það er því ekki aðeins hagsmunamál auglýsingastofa að verja og efla íslenskar skapandi greinar, heldur hagsmunamál atvinnulífsins alls. Skapandi greinar eiga ekki að vera jaðargreinar í íslensku hagkerfi. Þær skapa verðmæti. Þær skapa störf, auka samkeppnishæfni fyrirtækja og styrkja ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Þegar íslensk fyrirtæki og stofnanir velja að vinna með auglýsingastofum og framleiðslufólki á Íslandi eru þau ekki aðeins að kaupa markaðsefni eða herferðir, þau eru að fjárfesta í þekkingu, nýsköpun og framtíð íslensks atvinnulífs. Árangurinn í Cannes í ár sýnir hvað er mögulegt þegar framsýn fyrirtæki treysta íslenskri sköpunargáfu og hugviti. Hann sýnir að við getum skapað verk sem vekja athygli langt út fyrir landsteinana og standast samanburð við það besta sem gerist á heimsvísu. Ég trúi því að framtíðin sé björt fyrir íslenskar skapandi greinar. Við höfum hæfileikana, hugmyndirnar og metnaðinn. Nú þarf að halda áfram að rækta þann jarðveg sem gerir árangurinn mögulegan. Veljum íslenskt. Styðjum sköpunarkraftinn. Og höldum áfram að sýna heiminum hvað í okkur býr. Höfundur er formaður SÍA. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar