Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar 24. júní 2026 11:01 Íslenskt efnahagslíf stendur sterkum fótum. Atvinnulífið er blómlegt og atvinnuþátttaka mikil, útflutningsgreinar öflugar, opinber fjármál traust í alþjóðlegum samanburði og svona mætti áfram telja. Þetta skiptir máli vegna þess að það þýðir að við getum rætt gjaldmiðlamálin af yfirvegun út frá styrk en ekki í óðagoti vegna veikrar stöðu. Við getum átt hreinskilið samtal um hvað muni þjóna Íslandi best næstu áratugina. Spurt hvaða leið sé best til þess fallin að fyrirbyggja áföll og draga úr kostnaði heimilanna, og hver sé farsælasta leiðin að fyrirsjáanleika og stöðugleika. Skýrsla alþjóðlegra sérfræðinga Skýrsla um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum styrkir þessa umræðu með hagfræðilegri greiningu og alþjóðlegum samanburði. Til að tryggja óhlutdrægni vinnunnar fól ég Dr. Catherine L. Mann, fyrrum aðalhagfræðingi OECD sem situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Englands, að velja sjálf meðhöfunda sína. Við óskuðum sérstaklega eftir því að skýrsluhöfundar myndu ekki leggja til að nein ákveðin leið yrði farin. Það hefði ekki orðið gagnlegt innlegg í umræðuna enda þarf hún að byggja á gildismati þjóðarinnar. Það þýðir þó ekki að engar niðurstöður sé að finna í skýrslunni. Þvert á móti eru mjög skýrar, hlutlausar línur dregnar í samantekt og niðurlagi hvers kafla. Fimm atriði voru nefnd í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins um birtingu skýrslunnar undir yfirskriftinni „helstu niðurstöður“. Þessi atriði sneru bæði að kostum og ókostum þess að ganga inn í stærra gjaldmiðlasvæði. Hvað stendur í skýrslunni? Í skýrslunni kemur fram að gengi krónunnar hafi stundum gegnt mikilvægu hlutverki í aðlögun hagkerfisins þegar stóráföll hafa riðið yfir. Það er hluti af sögunni okkar og engin ástæða til að gera lítið úr því. Hún minnir okkur þó líka á að þessi aðlögun hefur ekki reynst einföld, ókeypis eða sársaukalaus. Fjármálahrunið 2008 er skýrasta dæmið. Þá veiktist krónan mikið og sú gengislækkun studdi ótvírætt við aðlögun hagkerfisins en það gerðist ekki án mikils tilkostnaðar eða fyrirhafnar. Við endurreisnina þurfti umfangsmikla endurskipulagningu bankakerfisins, efnahagsáætlun með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og fjármagnshöft sem voru ekki að fullu afnumin fyrr en mörgum árum síðar. Í skýrslunni er einnig umfjöllun um að litlum, sjálfstæðum gjaldmiðli fylgir viðvarandi kostnaður. Hann birtist meðal annars í hærri vöxtum en ella, gengisáhættu, meiri óvissu, hærri viðskiptakostnaði og dýrari fjármögnun. Fyrirtæki þurfa að verja sig gegn gengissveiflum. Heimili finna fyrir áhrifunum í verðbólgu og vaxtakostnaði. Hagkerfið í heild býr við meiri óvissu en það myndi annars gera. Spurningin er því ekki hvort einhver ávinningur sé af krónunni. Spurningin er hvort sá ávinningur vegi upp kostnaðinn. Ekki aðeins í kreppum heldur að jafnaði yfir tíma. Niðurstöður skýrsluhöfunda er sá að kostnaðurinn af krónunni sé umtalsverður á sama tíma og geta hennar til að jafna sveiflur í hagkerfinu sé takmörkuð. Þessar niðurstöður óháðra erlendra sérfræðinga eru allrar athygli verðar. Hvað þýðir þetta fyrir okkur? Það væri ekki rétt að láta eins og upptaka evru sé einföld lausn á öllum okkar málum. Hún kemur ekki í stað ábyrgra opinberra fjármála. Hún leysir ekki sjálfkrafa úr spennu á vinnumarkaði. Hún tryggir ekki ein og sér aukna framleiðni eða lága verðbólgu. Evran hefur þó tvímælalaust burði til þess að breyta umgjörðinni til hins betra. Hún getur dregið úr gengisáhættu, lækkað viðskiptakostnað, dýpkað tengsl við fjármálamarkaði Evrópu og skapað stöðugra umhverfi fyrir heimili og fyrirtæki. Hún getur auðveldað íslenskum fyrirtækjum að starfa á stærri markaði og stutt við erlenda fjárfestingu á Íslandi. Fyrir Ísland skiptir þetta máli vegna þess að hagvöxtur næsta áratugar verður að öllum líkindum drifinn áfram af öðrum kröftum en hagvöxtur síðustu 10 til 15 ára. Margar stoðir hagsældar okkar hafa náttúrulegar takmarkanir. Við getum ekki gengið út frá því að þessar atvinnugreinar muni vaxa næstu áratugi með sama hætti og áður. Við verðum líka að horfast í augu við að hagvöxtur á mann hefur verið lakari undanfarin ár en við getum sætt okkur við. Til þess að bæta lífskjör til framtíðar þarf meiri vöxt í framleiðni, nýsköpun, fjárfestingu og nýjum vaxtabroddum. Við þurfum fyrirtæki sem geta vaxið af krafti, ekki bara hér heima heldur líka erlendis. Fyrirtæki sem vilja vaxa þurfa aðgang að fjármagni á samkeppnishæfum kjörum, þau þurfa fyrirsjáanleika og þau þurfa að geta tekið langtímaákvarðanir án þess að gengisáhætta, háir vextir og óvissa verði stærri hindrun hér en í nágrannalöndum. Kostnaðurinn og ábatinn Í skýrslunni er dregið fram að veiking krónunnar hafi oft leitt til hratt hækkandi verðbólgu sem rýrir kaupmátt almennings. Á sama tíma eru jákvæð áhrif gengisveikingar á útflutning minni en skólabókardæmið um sjálfstæða fljótandi gjaldmiðla gerir ráð fyrir. Skýrsluhöfundar áætla að með upptöku evru myndi álag vegna gengisáhættu hverfa og gera þeir ráð fyrir því að það myndi leiða til beinnar lækkunar á fjármagnskostnaði. Þetta þýðir lægri vexti á lánum til fyrirtækja og húsnæðislánum heimilanna. Einnig er bent á að með inngöngu í myntbandalag væri varlega áætlað að losa megi um sem nemur helmingi gjaldeyrisforðans, eða um 500 milljarða króna, sem mætti nýta til niðurgreiðslu opinberra skulda og lækka þannig vaxtakostnað ríkisins. Evran kæmi þó ekki til með að leysa okkur undan allri ábyrgð. Í skýrslunni er greinargóð umfjöllun um að umbætur á vinnumarkaði séu nauðsynlegar hvort sem Ísland heldur krónunni eða tekur upp evru. Það er lykilatriði. Til þess að við getum byggt upp stöðugleika til lengri tíma þurfa laun að þróast í betri takti við framleiðni og verðbólgumarkmið. Þetta á við óháð því hver gjaldmiðillinn er. Hvað þjónar okkur best? Íslenska hagkerfinu hefur reitt ágætlega af á úfnum sjó. Því er ekki að neita. En viljum við leggja traust okkar á að það verði þannig til framtíðar? Eða teljum við vaxtatækifærin meiri með auknum efnahagslegum stöðugleika? Til dæmis betri aðgangi fyrirtækja, sérstaklega nýsköpunarfyrirtækja, að dýpri fjármálamörkuðum, hagstæðari fjármögnunarkjörum, minni gjaldeyrisáhættu, aukinni samkeppni og fyrirsjáanlegra rekstrarumhverfi. Stærsta markmiðið með skýrslunni var að styðja við upplýsta, faglega og hreinskipta umræðu um valkosti okkar í gjaldmiðlamálum. Sú umræða var hafin á ráðstefnu um skýrsluna í byrjun mánaðarins. Þar komu fram ólík sjónarhorn og hafa upptökur frá henni nú hefur verið birtar á vef ráðuneytisins með íslenskum texta. Skýrslan sjálf verður einnig gefin út í íslenskri þýðingu á næstunni. Þegar allt er tekið saman þá erum við í kjörstöðu núna til þess að taka upplýsta afstöðu og svara spurningunni um hvaða leið sé farsælust fyrir Ísland. Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Daði Már Kristófersson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Hernaðarheilkenni Heimssýnar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Hvað þarf til að verða sjúkraliði? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Flýtum tvöföldun Vesturlandsvegar – í þágu umferðaröryggis Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson skrifar Skoðun Sjálfbært laxeldi á Íslandi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Þau læra það börnin sem fyrir þeim er haft Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson Skoðun
Skoðun Flýtum tvöföldun Vesturlandsvegar – í þágu umferðaröryggis Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson skrifar
Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson Skoðun