Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar 22. júní 2026 15:00 Við Íslendingar, sem þegar ferðinni er heitið milli Spánar og Íslands og munum aldrei í hvaða átt er „heim“ og hvað er „út“, höfum séð mikla aukningu í flutningum ungs fjölskyldufólks til Spánar undanfarin misseri. Sjálfur hef ég, haft þann heiður að aðstoða marga þeirra að koma sér fyrir hér í suðri. Ástæður þessara landflutninga eru jafn fjölbreyttar og fólkið sjálft, en þær sem maður heyrir oftast eru alltaf þær sömu: Meira fyrir peningana Erfitt er að horfa fram hjá þeirri staðreynd að Reykjavík er ein dýrasta borg Evrópu. Laun eru mjög há, en það er líka dýrt að lifa. Flestir þeirra sem hafa flutt til Spánar halda þó íslenskum launum. Fjarvinna eða árstíðarbundin störf, t.d. í sjómennsku eða ferðaþjónustu, eru orðin mun algengari en áður og þökk sé aðild Íslands að EES höfum við rétt á að búa og starfa hvar sem er í Evrópu. Dagleg útgjöld eins og matarkaup, samgöngur og ýmis þjónusta eru töluvert lægri á Spáni. Þetta gefur fólki meira fjárhagslegt svigrúm. Húsnæðisverð á Spáni er almennt um þriðjungur af því sem við þekkjum á Íslandi. Og fólk fær að upplífa þann nýjung að sjá húsnæðilán sín lækka á milli mánaða. Nefnilega enginn verðtrygging. Þegar minna fer í nauðsynjar verður meira eftir fyrir það sem raunverulega skiptir máli: ferðalög, áhugamál, sparnað og tíma með fjölskyldu og vinum. Lífsgæði sem erfitt er að setja verðmiða á Spánn býður upp á meira en hagkvæmari framfærslu. Þar njóta íbúar hundruða sólardaga á ári, mildra vetra og menningar sem leggur ríka áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Á meðan íslenskur vetur getur reynst langur og krefjandi, getum við sem búum við miðjarðarhafið notið útiveru allt árið um kring. Fyrir ungt fólk sem vill njóta daglegs lífs í stað þess að bíða eftir fáeinum sumarmánuðum á ári getur þessi breyting verið gríðarlega mikilvæg. Einn besti staður Evrópu til að ala upp börn Spánverjar eru miklar félagsverur og er samfélag þeirra þekkt fyrir sterka fjölskyldumenningu þar sem börn eru sýnilegur og eðlilegur hluti af samfélaginu. Garðar, leikvellir, göngugötur og almenningssvæði eru víða full af fjölskyldum fram á kvöld allt árið um kring. Börn eyða meiri tíma utandyra og hafa oft meira frelsi til að leika sér og umgangast önnur börn en víða annars staðar í Evrópu. Mataræðið er einnig almennt hollt og byggir á fersku grænmeti, ávöxtum, fiski og öðrum hráefnum sem eru bæði aðgengileg og hagkvæm. Það auðveldar fjölskyldum að viðhalda heilbrigðum lífsstíl án þess að kostnaðurinn fari úr böndunum. Alþjóðlegt samfélag og ný tækifæri Miðjarðarhafsströnd Spánar hefur laðað að sér fólk alls staðar að úr heiminum. Þar búa miljónir manna af ólíkum uppruna, sem skapar fjölbreytt og alþjóðlegt samfélag þar sem auðvelt er að kynnast nýju fólki og byggja upp tengslanet. Fyrir börn getur það einnig verið dýrmæt reynsla að alast upp í fjöltyngdu umhverfi. Að læra spænsku frá unga aldri og kynnast ólíkum menningarheimum getur opnað dyr sem nýtast alla ævi. Hvers vegna varstu ekki kyrr? Það er auðvelt að vera neikvæður og líta á þetta sem gagnrýni á Ísland og íslenskt samfélag. En sú er alls ekki raunin. Ísland er frábært land með ríka sögu og það eru einstök forréttindi að hafa fæðst þar. Það að flytja til Spánar er í raun aðeins önnur hlið á þeim forréttindum sem við búum nú þegar yfir. Að geta flutt til annars öruggs og trausts evrópsks velferðarríkis og notið allra þeirra kosta sem áður hafa verið nefndir, en um leið haldið öllu því góða sem fylgir því að vera frá Íslandi. Það besta úr báðum heimum. Íslenskt samfélag tapar þessu fólki heldur ekki endilega. Nánast allir halda sterkum tengslum við Ísland og margir snúa aftur síðar á lífsleiðinni. Kannski þegar þeir eru orðnir þreyttir á sólinni, rólegheitunum og sjá höfuðstól lánsins lækka um hvern mánaðarmót. Höfundur er með BA gráðu í alþjóðasamskiptum frá Evrópuháskólanum í Valensíaborg á Spáni þar sem hann hefur verið búsettur síðan 2000. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar