Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 21. júní 2026 14:01 Í grein á Vísi spyr Diljá Mist Einarsdóttir: „Hverjir fá sætin við borðið?“ Hún dregur upp mynd af því að Ísland yrði áhrifalítið innan Evrópusambandsins vegna smæðar sinnar og að helst séu það stjórnmálamenn og embættismenn sem hafi áhuga á að sitja við „borðið“. Skoðum þetta aðeins betur. Hvar situr Ísland í dag? Meginhluti þeirra reglna sem gilda um innri markað Evrópu hefur áhrif á Ísland í gegnum EES-samninginn. Við tökum upp stóran hluta þess regluverks sem mótar atvinnulíf, neytendavernd, fjármálamarkaði, samkeppnisreglur og fjölmörg önnur svið. En þegar reglurnar eru samdar situr Ísland ekki við ákvörðunarborðið. Vinur minn sem var í þessari vinnu beið út á gangi og var að grípa fulltrú þingsins þegar þeir komu út í kaffi til koma sjónarmiðum okkar á framfæri. Nú getum við aðeins komið okkar sjónarmiðum á framfæri, erum ekki við „borðið“ og höfum ekki atkvæðisrétt þegar endanlegar ákvarðanir eru teknar. Þess vegna snýst umræðan um „sæti við borðið“ ekki um virðingarstöðu eða starfsframa einstakra embættismanna. Hún snýst um lýðræðisleg áhrif Íslands. Sex þingmenn – en það er ekki öll sagan Andstæðingar aðildar benda oft á að Ísland myndi aðeins fá sex þingmenn á Evrópuþinginu af rúmlega sjö hundruð. Það er rétt. En Evrópusambandið er ekki byggt upp eins og eitt þjóðþing þar sem aðeins íbúafjöldi ræður. Löggjöf ESB verður almennt aðeins til þegar tvær stofnanir ná saman: Evrópuþingið sem er kosið af borgurum Evrópu og Ráðherraráðið þar sem ríkisstjórnir aðildarríkjanna eiga sæti. Í ráðherraráðinu situr ráðherra frá hverju ríki. Þar hefði Ísland sæti við borðið ásamt öðrum þjóðum Evrópu þegar reglurnar eru samdar og samþykktar. Smáríki hafa meira vægi en margir halda Evrópusambandið er ekki eingöngu samband borgara. Það er líka samband ríkja. Þess vegna fá smærri ríki hlutfallslega meira vægi en íbúafjöldi þeirra einn myndi gefa til kynna. Hvert ríki: tilnefnir einn framkvæmdastjóra, á fulltrúa í ráðherraráðinu, á fulltrúa í fjölmörgum nefndum og stofnunum, tekur þátt í undirbúningi löggjafar, hefur aðkomu að skipun dómara og öðrum lykilstofnunum. Raunveruleg áhrif ráðast því ekki aðeins af atkvæðafjölda í þinginu heldur einnig af sérþekkingu, samningahæfni og getu til að byggja upp bandalög. Raunveruleikin er að ríki eins og Malta, Lúxemborg, Írland og Danmörk hafa áhrif langt umfram íbúafjölda. Eru embættismenn vandamálið? Diljá Mist bendir á að fjölmargir starfsmenn vinni fyrir ESB og að aðild myndi skapa störf fyrir Íslendinga. Er það ekki bara gott? Spyrjum frekar: Viljum við að reglur sem hafa áhrif á Ísland séu samdar án íslenskrar aðkomu? Eða viljum við hafa íslenska sérfræðinga, lögfræðinga, hagfræðinga og embættismenn inni í kerfinu þar sem ákvarðanir eru mótaðar? Þegar íslensk fyrirtæki, bændur, sjómenn, neytendur eða námsmenn eiga hagsmuna að gæta í Evrópu er það styrkur en ekki galli að Íslendingar taki þátt í þeirri vinnu. Kjarninn í „að vera við borið“ Þetta snýst ekki um hvort sex þingmenn séu fleiri eða færri en níutíu og sex þingmenn Þýskalands. Þetta snýst um hvort Ísland eigi að vera áhorfandi eða þátttakandi. Hvort við viljum halda áfram að taka við stórum hluta evrópsks regluverks án beinnar aðkomu og atkvæðisréttar. Eða hvort við viljum eiga fulltrúa í þeim stofnunum sem semja reglurnar frá upphafi. Ef við viljum eiga sæti við borðið þá viljum við að íslensk rödd heyrist þegar unnið er að málum sem hafa áhrif á íslenska hagsmuni og ákvarðanir sem snerta framtíð landsins eru teknar. Höfundur er með MS í stjórnun og stefnumótun og er stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar