Innlent

Sigldu af stað með mótmælandann um borð

Freyja Þórisdóttir skrifar
Skipið er siglt af stað.
Skipið er siglt af stað. Vísir

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann sé með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. 

Hann segist ekki vita hvað annað hann getur gert til að mótmæla hvalveiðum.

Fyrr í dag sagðist Hólmsteinn ekki ætla sjálfviljugur niður því það væri erfitt að taka menn úr tunnunni. Hann segist ekki vita hvenær það verði eða við hvaða aðstæður. Hólmsteinn skipulagði mótmælin einn.

„Ég bara veit ekki hvað annað ég get gert. Lögreglan kom og fór áðan. Nokkrir úr áhöfninni töluðu við mig,“ segir Hólmsteinn í samtali við Vísi fyrr í dag en hann hafði einnig orð á því að hann ef að skipið færi, þá færi hann einnig.

„Þetta mun ekki stoppa þetta skip, þegar ég fer þá fer skipið. En ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum, sumir gera þetta, aðrir skrifa, aðrir tala. Það er fallegt að allir geri það sem þeir geta.“

„Þetta mun ekki stoppa þetta skip, þegar ég fer þá fer skipið,“ sagði Hólmsteinn Harðarson.Vísir

Hvalur 8 sigldi fyrr í dag upp í Hvalfjörð og líklegt þykir að Hvalur 9 geri það sömuleiðis þar sem hvalabyssur yrðu settar á það og skipverjar myndu þjálfa sig í notkun þeirra. Ætti skipið að halda út á mið til hvalveiða um næstu helgi, líklegast á laugardag, þann 20. júní.

Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að ekki hefði verið óskað eftir aðkomu lögreglu að mótmælunum.

„Við fórum, ræddum við þá sem málið snýr að og það var ekki óskað eftir aðkomu lögreglu að þessu,“ sagði hann í samtali við blaðamann.

Fréttin hefur er ennþá í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×