Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Lovísa Arnardóttir skrifar 18. júní 2026 12:58 Matvöruverð er almennt lægst í Prís. Vísir/Vilhelm Verðmunur á einstökum vörum er víða mikill og í mörgum tilvikum fer hann yfir 30 prósent. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum eða oft á bilinu fimm til tíu prósent frá lægsta verði. Verð er enn ódýrast í Prís og um fimm til sex prósentum dýrara í Bónus og Krónunni. Þetta sýnir ný könnun Verðlagseftirlits ASÍ á matvöruverði.
Verðmunur á einstökum vörum er víða mikill og í mörgum tilvikum fer hann yfir 30 prósent. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum eða oft á bilinu fimm til tíu prósent frá lægsta verði. Þetta sýnir ný könnun Verðlagseftirlits ASÍ á matvöruverði. Í tilkynningu segir að niðurstöðurnar undirstriki að neytendur geti sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að bera saman verð milli verslana. Samkvæmt úttektinni er ódýrasta verðið á matvöru að finna í Prís en þar á eftir fylgja Bónus og Krónan. Þar kemur einnig fram að þegar verð voru borin saman á 289 vörum sem fengust í lágvöruverslunum, þeim Bónus, Krónunni, Nettó og Prís, var lægsta verðið oftast að finna í Prís. Verð 5,5 prósentum hærra en í Prís Verslunin væri þannig með lægsta verð á fjölmörgum vörum í öllum helstu vöruflokkum, þar á meðal mjólkurvörum, brauðvörum, kjötvörum, drykkjarvörum og ýmsum þurrvörum. Að jafnaði var verð á vörum í Bónus um 5,5 prósentum hærra en þar sem varan fékkst á lægsta verði, sem í nær öllum tilfellum var í Prís. Verð á vörum í Krónunni var að jafnaði sex prósentum hærra og Nettó um 11 prósentum hærra. Samkvæmt tilkynningu er tæplega átta þúsund króna verðmunur á vörukörfunni í lágvöruverslunum. Vörukarfa með hundrað algengum neysluvörum var ódýrust í Prís þar sem hún kostaði 60.395 krónur samanborið við 68.127 kr. í Nettó þar sem vörukarfan var dýrust. Í Bónus kostaði sama karfa 64.373 kr. og í Krónunni 64.546 kr. Vörulistann má í heild sinni sjá hér. Í tilkynningu er tekið fram að vöruúrval geti verið mjög breytilegt á milli verslana og einnig munur á stærð pakkninga. Af þeim vörum sem fáanlegar voru í öllum níu verslununum hafi verið algengt að verðmunur væri á bilinu 25 til 70 prósent. Mest hafi munað á verði á heimilisbrauði frá Myllunni sem var meira en tvöfalt dýrara í Krambúðinni heldur en í Prís. Hæsta verðið í Krambúðinni Þá er samkvæmt könnuninni mikill verðmunur á sérvörum og algengum neysluvörum sem finna má á flestum heimilum. Í flestum tilfellum hafi hæsta verðið verið að finna í Krambúðinni og þar á eftir í Hagkaupum. Listann má í heild sinni finna hér. Á meðal dæma má nefna: • MS léttmjólk, 1 lítri, kostaði frá 259 krónum í Prís upp í 369 krónur í Krambúðinni, sem jafngildir 42 prósenta verðmun. Nýmjólk var á bilinu 259 til 369 krónur í Krambúðinni, einnig 42 prósenta munur. KEA smáskyr var á bilinu 201 til 289 krónur eftir verslunum, eða 44 prósenta munur. Ódýrast var það í Prís en dýrast í Krambúðinni. Heimilisjógúrt með jarðarberjabragði kostaði frá 492 krónum í Prís upp í 649 krónur í Krambúðinni, sem er 32 prósenta munur. Góðostur í sneiðum kostaði á bilinu 1.105 til 1.399 krónur í Krambúðinni, eða 27 prósenta munur. Kjarnafæði Lúxus Lambalæri kostaði frá 2.599 kr/kg í Prís upp í 4.779 kr/kg í Nettó, sem jafngildir 84 prósenta verðmun og rúmlega 2.100 króna mismun á kr/kg. Ali brakandi lærakjöt var á bilinu 1.659 til 2.239 krónur, eða 35 prósenta munur. Þá kostuðu kjúklingabringur frá 2.110 kr/kg upp í 2.759 kr/kg eftir verslunum. Rauð epli voru ódýrust í Prís á 399 kr/kg en þar á eftir fylgdi Krónan á 413 kr/kg og Bónus á 459 kr/kg. Spergilkál kostaði frá 479 krónum upp í 749 krónur, sem er 56 prósenta munur. Lambhagasalat var á bilinu 459 til 799 krónur, eða 74 prósenta munur. Verðmunur á sveppum og tómötum var minni, eða 13 og 12 prósent. Í tilkynningu kemur fram að þótt munurinn á einstaka vörum virðist oft ekki mikill geti hann safnast hratt upp þegar keyptar eru margar vörur í einni innkaupaferð. Könnunin sýni að verðmunur á algengum dagvörum sé enn mikill og að sérstaklega geti borgað sig að fylgjast með verði á kjöti, mjólkurvörum og brauðvörum þar sem munurinn sé gjarnan mikill. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru dagana 8. til 14. júní í níu verslunum. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Krambúðinni, Kjörbúðinni, Fjarðarkaupum, Prís og SPAR. Nánar hér á vef ASÍ.
Matvöruverslun Verðlag Fjármál heimilisins ASÍ Neytendur Tengdar fréttir Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu. 10. júní 2026 13:03 Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Krambúðin býður nú lægra verð á 200 vörum í öllum búðum. Valdar hafa verið 200 vörur sem skipta heimilin í landinu máli og þær nú boðnar á sama verði og í Prís. 26. janúar 2026 12:30 Verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum Samkvæmt mælingum verðlagseftirlitsins í desember mælist verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum sem voru skoðaðar. Mandarínum, laufabrauði, smjör og rjóma, til dæmis. Einnig var kannað verð á konfekti, gosi og fleiri vörum. 17. desember 2025 15:38 Mest lesið Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Fleiri fréttir Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Sjá meira
Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu. 10. júní 2026 13:03
Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Krambúðin býður nú lægra verð á 200 vörum í öllum búðum. Valdar hafa verið 200 vörur sem skipta heimilin í landinu máli og þær nú boðnar á sama verði og í Prís. 26. janúar 2026 12:30
Verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum Samkvæmt mælingum verðlagseftirlitsins í desember mælist verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum sem voru skoðaðar. Mandarínum, laufabrauði, smjör og rjóma, til dæmis. Einnig var kannað verð á konfekti, gosi og fleiri vörum. 17. desember 2025 15:38
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent