Erlent

Trump segir sam­komu­lag hafa náðst við Íran

Eiður Þór Árnason skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Getty/Kevin Dietsch

Friðarsamkomulag hefur náðst milli Bandaríkjanna og Íran. Þetta staðfestir Bandaríkjaforseti og forsætisráðherra Pakistans sem hefur haft milligöngu um viðræður ríkjanna. Til standi að undirrita samninginn í Sviss föstudaginn 19. júní.

„Samkomulagið við Íslamska lýðveldið Íran er nú frágengið,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðlinumTruth Social.

„Ég heimila hér með að fullu opnun Hormússunds án tollgjalda og heimila um leið og samstundis að herkví Bandaríkjanna verði aflétt,“ segir hann.

„Skip heimsins, ræsið vélarnar. Látið olíuna flæða!“

„Báðir aðilar hafa lýst yfir tafarlausri og varanlegri stöðvun hernaðaraðgerða á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon,“ segir Shehbaz Sharif í færslu á X, áður Twitter.

„Nú þegar samkomulagið er í höfn munu sáttasemjarar greiða fyrir röð funda í þessari viku. Þessar innleiðingarviðræður munu leggja grunninn að tæknilegum viðræðum og opinberu undirritunarathöfninni.“

Shehbaz Sharif.AP

Wall Street Journal hafði áður haft eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta að von væri á yfirlýsingu frá honum þar sem hann staðfesti að Bandaríkin hefðu náð samkomulagi við Íran. Fjölmiðillinn hafði ekki fengið sambærilega staðfestingu frá fulltrúum Íran. 

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×