„Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 13. júní 2026 12:38 Vilborg Ása Guðjónsdóttir er alþjóðastjórnmálafræðingur. vísir/epa Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar.
Í gær greindi forsætisráðherra Pakistans frá því að lokaorðalag friðarsáttmála hefði verið samþykkt af forsvarsmönnum beggja þjóða. Í nýlegri færslu á X segir hann friðarsamkomulag nærri en aldrei fyrr. Samkomulagið verði undirritað á næsta sólarhrning. Meðal ákvæða í fyrirliggjandi friðarsamkomulagi er fyrirvaralaus opnun fyrir skipaumferð um Hormússund og aflétting hafnarbanns Bandaríkjanna í Íran. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir að ekkert sé fast í hendi. „Nú er þetta ekki eiginlegt friðarsamkomulag heldur viljayfirlýsing sem á að gilda í 60 daga og á að leggja grunninn að mögulegu friðarsamkomulagi. Þar að auki er Ísrael ekki aðili að þessari viljayfirlýsingu. Þannig að það er ákveðinn stór áhættuþáttur, hvort þeir muni virða skilmálana sem þarna eru gefnir, annars vegar þegar kemur að áframhaldandi árásum Ísraela á Íran og svo hins vegar Líbanon. Það er alls óvíst hvort að þessir aðilar muni fylgja viljayfirlýsingunni.“ Ísraelar hafa haldið úti loftárásum á Líbanon í dag og skipað íbúum í suðurhluta landsins að yfirgefa heimkynni sín samkvæmt umfjöllun Breska ríkisútvarpsins. Minnst einn er látinn. Hún bætir við að ástandið hafi nú þegar haft áhrif á samband Bandaríkjanna og Ísraela sem hafa verið nánir bandamenn til þessa. Spennan hafi aukist gífurlega þar á milli. Hún segir stríðið skila litlu sem engu. „Þarna er verið að semja um að opna aftur Hormússund sem var náttúrulega einfaldlega lokað út af árásum Ísraela og Bandaríkjanna á Íran. Svo á einhvern veginn á næstu 60 dögum ef þessi yfirlýsing verður samþykkt á að semja um kjarnorkuáætlun Írana. En það er ekkert í hendi þar.“ Hún segir að mögulega sé búið að veikja stöðu Írana vegna loftárása og eyðileggingar á innviðum. „Það er ekkert sem til lengri tíma litið er endilega að fara að skila einhverri gjörbreyttri stöðu og mögulega bara hið gagnstæða. Það er erfitt að sjá hvaða tilgangi þetta stríð átti að þjóna og hefur þjónað. Ég meina það er ekkert sem hefur skilað sér jákvætt til Bandaríkjanna hvað þetta varðar.“ Málið muni draga dilk á eftir sér fyrir Bandaríkjaforseta enda mikil óánægja meðal almennings vegna átakanna. „Almenningur í Bandaríkjunum hefur engan sérstakan áhuga á þessu stríði. Það eru miðkjörtímabilskosningar fram undan í Bandaríkjunum og þetta er eitthvað sem Repúblikanaflokkurinn kann að hafa áhyggjur af. Þetta hefur skapað mjög slæma stöðu fyrir allan heiminn hvað varðar eldsneytisverð. Sömuleiðis hvað varðar landbúnað, ræktun og áburð. Það er eitthvað sem mun ekki ganga til baka bara um leið og það er búið að ná einhvers konar samkomulagi. Það eru líkur á að afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel. Það má búast við einhverjum lækkunum ef að þessi viljayfirlýsing verður undirrituð. Afleiðingarnar eru það miklar að þetta gengur ekki til baka bara um leið. Það eru engar líkur á því.“
Íran Bandaríkin Ísrael Líbanon Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira