Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. júní 2026 14:56 Skúlaskeið RE. Landhelgisgæslan Farþegabáturinn Skúlaskeið RE sem strandaði við sunnanverða Akurey við svokallað Músasund losnaði úr sjálfheldu um hálf þrjú og siglir nú aftur á eigin vélarafli til hafnar.
Sextán farþegar voru um borð þegar báturinn strandaði en þeir voru allir fluttir til lands með öðrum bát skömmu eftir að Skúlaskeið sigldi upp á grjót rétt fyrir klukkan tíu í morgun. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu. Báturinn sigldi upp á grjót.Landhelgisgæslan „Það var mat skipstjórans að það væri engin hætta á ferðum, aðstæðurnar væru góðar og það væri búið að koma farþegunum yfir í annan bát. Þannig að Landhelgisgæslan kallaði út sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar til þess að vera til taks og það var síðan bara ákveðið að bíða eftir því að það myndi flæða að til þess að losa bátinn og núna bara rétt fyrir hálfþrjú að þá losnaði báturinn og siglir núna bara undir eigin vélarafli til Reykjavíkur.“ Hann segir að svo virðist sem engar skemmdir hafi orðið á bátnum. Björgunarsveitir frá Landsbjörgu voru á svæðinu til að geta brugðist við ef það skyldi flæða inn í bátinn. Björgunarsveitir fylgja nú bátnum til lands. Ekki liggur fyrir hvernig báturinn strandaði. „Það er eitthvað sem þarf síðan að skoða í framhaldinu. Eins og alltaf þegar að svona gerist þá tilkynnir Landhelgisgæslan svona atvik til Rannsóknarnefndar samgönguslysa sem að mun væntanlega fara nánar yfir það í kjölfarið hvað þarna gerðist.“
Reykjavík Samgönguslys Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfarenda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira