Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Kjartan Kjartansson skrifar 12. júní 2026 11:52 Stúlkan sagði meðal annars að faðir hennar hefði fyrst kysst kodda áður en hann setti munn sinn yfir munn hennar. Það átti að hafa gerst þegar hún vakti hann ölvaðan. Myndin er úr safni. Vísir/Getty Landsréttur sýknaði föður af ákæru um að hafa reynt að reka tungu sína upp í dóttur sína. Maðurinn hafði áður verið sýknaður af öðrum ákæruliðum um kynferðisbrot gegn stúlkunni sem var sjö ára þegar atvikið átti sér stað.
Maðurinn var upphaflega ákærður fyrir að káfa á stúlkunni, setja munn sinn yfir munn hennar og reyna að setja tungu sína upp í hana. Atvikið átti að hafa gerst í apríl árið 2023 þegar stúlkan gisti hjá honum en hann og móðir stúlkunnar voru þá skilin að skiptum. Héraðsdómur Suðurlands sýknaði manninn af öðrum ákæruliðum en þeim sem vörðuðu að hafa reynt að stinga tungu sinni upp í stúlkuna í ágúst. Sá liður var sá eini af upphaflegu ákærunni sem kom til kasta Landsréttar. Maðurinn gekkst við því að hafa brugðist stúlkunni með því að hafa drukkið áfengi á meðan hún dvaldi hjá honum en hann hafði áður átt við áfengisvandamál að stríða. Hann hafnaði aftur á móti að hafa haft nokkra kynferðislega háttsemi gagnvart dóttur sinni. Talin undir áhrifum frá neikvæðri afstöðu móður Landsréttur taldi framburð mannsins hafa verið staðfastan en ákveðnir þættir og aðstæður drægju úr sönnunargildi og áreiðanleika framburðar stúlkunnar um atvikið. Framburður hennar fengi sér ekki stoð í gögnum málsins sem dyggði til sakfellingar gegn eindreginni neitun mannsins. Dómurinn taldi ekki hægt að líta fram hjá því að stúlkan bæri viss merki um að vera undir áhrifum neikvæðra viðhorfa móður hennar í garð föður hennar, einkum vegna áfengisneyslu hans. Líklegt væri að tiltekin atriði í frásögn stúlkunnar væru frá móðurinni eða öðrum komin. Þannig vísaði stúlkan á móður sína sem heimild fyrir nokkrum fullyrðingum í frásögn hennar í Barnahúsi.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira