Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Birgir Olgeirsson skrifar 12. júní 2026 10:14 Alexander Ingi Olsen hefur starfað sem flugmaður hjá Icelandair í 10 ár. Afi hans og faðir störfuðu einnig sem flugmenn hjá fyrirtækinu í áratugi. Alexander segir að miðað við núverandi vinnuálag og það sem er boðað í nýju tilboði Icelandair sjái hann ekki fram á að vera langlífur í starfi hjá félaginu. Aðsend/Vilhelm Flugmaður hjá Icelandair segir nýtt tilboð félagsins í kjaradeilu við flugmenn fela í sér meira vinnuálag, minni vernd í kringum hvíld og launalækkanir. Hann segir deiluna ekki snúast um kröfu flugmanna um hærri laun, heldur hvort þeir geti yfirhöfuð ráðið við álagið til lengri tíma.
Alexander Ingi Olsen, flugmaður hjá Icelandair, segir tilboðið hafa verið kynnt flugmönnum í byrjun vikunnar. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hafa verið í fjölmiðlabanni vegna viðræðnanna. „Mín upplifun af kollegum mínum er sú að þeir ráði ekki við vinnuálagið sem þeim er ætlað í dag. Þá eiga þeir erfitt með að semja um að vinna meira.“ Að sögn Alexanders var tilboðinu ekki vel tekið meðal flugmanna. „Þeir vilja að við vinnum meira fyrir lægri laun. Það gengur ekki upp.“ Flugmenn tóku á sig kjaraskerðingu við endurreisn Icelandair árið 2020. Þá var samið um aukið vinnuframlag og launafrost í þrjú ár, á sama tíma og félagið glímdi við afleiðingar heimsfaraldursins. „Við erum ekki að fara fram á neinar launahækkanir. En menn geta ekki samið um meira vinnuálag þegar þeir ráða ekki við vinnuálagið sem er fyrir.“ Segir allt stranda á kostnaðinum Alexander segir flugmenn gera sér grein fyrir stöðu félagsins. Vandinn sé að kröfur um minna álag eða betri vernd í kringum hvíld séu metnar sem aukinn kostnaður. „Frá okkar sjónarhorni þarf eitthvað að breytast. Frá sjónarhorni fyrirtækisins kostar það peninga og það er ekki í boði. Þá fer allt í lás.“ Hann hefur starfað hjá Icelandair í um tíu ár. Tengsl fjölskyldunnar við flugið ná þó lengra aftur; afi hans starfaði hjá Loftleiðum og faðir hans einnig í fluginu. „Ég var rosalega ánægður og stoltur að vera orðinn flugmaður en ég er ekkert viss um að ég muni endast næstu tuttugu eða þrjátíu ár í þessu.“ Frídagar sem nýtast ekki alltaf til hvíldar Eitt helsta ágreiningsefnið snýr að vaktafyrirkomulagi. Alexander segir fjölda frídaga ekki segja alla söguna, því oft fari þeir í að ná sér eftir næturflug, löng flug og tímamismun. „Þú færð kannski þína níu frídaga en ert dauðuppgefinn og sefur þá frá þér. Svo tekur það einn til tvo daga að ná sér eftir tímamismuninn og þá ertu kannski aftur mættur í morgunflug.“ „Ég og fleiri höfum stundum talað um að það er engin launaupphæð sem er þess virði að við séum til í að selja frá okkur annaðhvort heilsuna eða þá að vera hluti af lífum barnanna okkar. Það er enginn til í það." Hann segir samanburð við erlend lággjaldafélög ekki ná utan um vandann hjá Icelandair, þar sem blanda næturfluga, morgunfluga og tímamismunar vegi þungt. „Icelandair vill gjarnan bera saman vinnuálag hjá lággjaldafélögunum við hvernig þetta er hjá okkur en það segir ekki alla söguna. Ég myndi mikið frekar vilja vinna fleiri flugtíma með samskonar vaktaskrám og eru hjá EasyJet, Ryanair eða Wizz Air þar sem flugmenn vinna nær aldrei á nóttunni. En ekki svona næturvakt, morgunvakt, næturvakt, morgunvakt eins og það er gjarnan hjá okkur. Líkaminn nær aldrei takti og við getum ekki flogið jafn mikið.“ Að hans mati er álagið farið að hafa áhrif á líf flugmanna utan vinnu. „Maður fer inn í þetta eins og fallegt jarðarber og kemur út eins og soðin rúsína. Maður á ekkert eðlilegt líf fyrir utan vinnuna.“ Segir háar launatölur ekki lýsa stöðu flestra Laun flugmanna hafa verið til umræðu í tengslum við deiluna. Morgunblaðið greindi til að mynda frá því í gær að flugstjórar hjá Icelandair væru með tæpar þrjár milljónir króna á mánuði í laun. Alexander segir þær tölur sem hæst hafa borið ekki endurspegla kjör almennra flugmanna. Samninganefnd Icelandair í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni. Vísir/Vilhelm „Ég er ekki með þessi laun og ég þekki engan sem er með þessi laun. Ég er ekki flugstjóri. Þegar svona tölur eru birtar er oft verið að slíta hluti úr samhengi.“ Hann segir flugmenn ekki hafna því að starfið sé krefjandi eða að félagið þurfi sveigjanleika. Mörkin séu hins vegar komin of langt. „Ég vil halda eðlilegum flugmannalaunum en fyrst og fremst vil ég vinna vinnuálag sem ég ræð við. Þetta má vera vaktavinna, en ég þarf að geta lifað.“ Óttast að störf færist úr landi Áhyggjur flugmanna snúa einnig að hugmyndum um aukna starfsemi tengda Möltu og breytingum á ákvæðum um forgangsrétt. Alexander segir flugmenn óttast að slíkar breytingar geti veikt stöðu þeirra til framtíðar. „Frá okkar sjónarhorni snýst þetta meðal annars um hvort verið sé að flytja störfin okkar úr landi.“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.Sigurjón Ólason Hann efast um að sú leið skili Icelandair þeim ávinningi sem vonast sé eftir. „Ég hef enga trú á því að þetta muni virka. Ég held að þeir fái ekki endilega ódýrari flugmenn með þessu.“ Neitar því að um aðgerðir sé að ræða Icelandair hefur áður bent á að félagið þurfi svigrúm til að manna flug. Alexander segir hins vegar ekki hægt að gera ráð fyrir að flugmenn vinni reglulega á frídögum sínum. „Ég er ekki í neinum aðgerðum og mér finnst ekki að flugmenn eigi að vera í aðgerðum. En ef það er hringt í mig á frídegi og ég er of þreyttur þá er svarið nei. Ég get það ekki.“ Hann segir það benda til kerfisvanda ef reksturinn gangi út á að flugmenn selji frá sér frí. „Það er ekki hægt að ganga svona fram af mönnum.“ „Eins og maður sé að vinna hjá öðru fyrirtæki“ Alexander segir margt innan Icelandair vera til fyrirmyndar. Hann nefnir aðstöðu á skrifstofum félagsins og segir þar virðast tekið meira tillit til eðlilegs jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Frá höfuðstöðvum Icelandair á Völlunum í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm „Á skrifstofunni er tekið tillit til þess að fólk þurfi að geta átt eðlilegt líf meðfram vinnunni. Svo mætir maður í flugvélina og þá er eins og maður sé að vinna hjá öðru fyrirtæki.“ Hann segir flugmenn ekki vera að biðja um átakalaust starf. Þeir viti að starfinu fylgi ábyrgð, óregla og vaktavinna. Spurningin sé hvort hægt sé að endast í því. „Ég hef rætt það við konuna mína hvort ég þurfi að fara að skrá mig í háskóla. Ég geri þetta ekki næstu þrjátíu árin eins og þetta er í dag.“
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira