Viðskipti innlent

Halli ríkis­sjóðs eykst um tugi milljarða milli ára

Árni Sæberg skrifar
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Anton Brink

Samkvæmt bráðabirgðamati er afkoma hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi 2026 áætluð neikvæð um 23,7 milljarða króna, sem jafngildir 1,8 prósentum af vergri landsframleiðslu tímabilsins. Til samanburðar er áætlað að afkoma hins opinbera hafi verið nálægt jafnvægi á fyrsta ársfjórðungi 2025, þótt heildarafkoma þess árs sé metin neikvæð um 120,1 milljarð króna.

Í tilkynningu þess efnis á vef Hagstofu Íslands segir að talnaefni fyrir 2025 byggi enn á bráðabirgðagögnum og niðurstöður muni því taka breytingum þegar uppgjör liggur fyrir í september næstkomandi.

Hagstofan vekur athygli á því að samhliða útgáfu bráðabirgðamats hafi farið fram endurskoðun á talnaefni, sem hafi áhrif á skatttekjur ríkissjóðs og þar með afkomu hins opinbera árin 2023-2025.

Í heild sé áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 3,8 prósent frá fyrsta ársfjórðungi 2025. Þar af bendi bráðabirgðatölur til þess að skatttekjur séu að aukast um 1,9 prósent á tímabilinu á meðan aðrar tekjur hins opinbera aukist um 11,5 prósent. Hærri arðgreiðslur frá fyrirtækjum í eigu ríkissjóðs séu helsta skýring á aukningu í öðrum tekjum hins opinbera.

Vaxtagjöld jukust um fimmtung

Áætlað sé að heildarútgjöld hafi aukist um 8,3 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þar vegi þyngst að áætluð útgjaldaaukning vegna félagslegra tilfærsla til heimila sé 13,0 prósent, vegna vaxtagjalda 20,4 prósent og 8,3 prósent vegna samneyslu.

Vert sé að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðist við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn (ESA2010). Með hinu opinbera teljist meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs, sem hafi veruleg áhrif á vaxtatekjur og gjöld þess. Í greinagerð sem gefin var út 30. nóvember 2020 og er aðgengileg á vef Hagstofunnar sé fjallað sérstaklega um aðferðafræðilegan grundvöll geiraflokkunar og úrlausn álitamála sem snúa að flokkun fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins.

Fengu uppfærð gögn

Samhliða birtingu fjármála hins opinbera fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 birti Hagstofa Íslands niðurstöður endurskoðunar á skatttekjum ríkissjóðs árin 2023 til 2025.

Frá því bráðabirgða tölur fyrir árið 2025 voru birtar 12. mars síðastliðinn hafi Hagstofunni borist uppfærð gögn um þróun tekna af sköttum á vöru og þjónustu fyrir árin 2023 til 2025. Samkvæmt uppfærðum gögnum sé ljóst að skatttekjur höfðu verið ofmetnar fyrir árið 2024 í fyrri útgáfum. Nú hafi verið tekið tillit til þess og tímaröð leiðrétt á grundvelli ítarlegri gagna og viðbótarupplýsinga. Leiðréttingin hafi áhrif á tekjur og þar af leiðandi á afkomu hins opinbera árin 2023 til 2025.

Jafnframt hafi uppfærð gögn um skatttekjur ársins 2025 verið tekin til greina og bráðabirgðatölur endurmetnar í samræmi við það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×