Golf

Gunn­laugur Árni í bráða­bana um laust sæti á U.S. Open

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson sýndi styrk sinn með frábærri spilamennsku í dag.
Gunnlaugur Árni Sveinsson sýndi styrk sinn með frábærri spilamennsku í dag. Getty/Tanner Pearson

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson á enn möguleika á sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að seinni hringurinn kláraðist. Hann er á leiðinni í fjögurra manna bráðabana um þrjú laus sæti á risamótinu.

Gunnlaugur Árni lék 36 holur í dag og þær samtals á 135 höggum eða 9 höggum undir pari.

Gunnlaugur lék fyrri hringinn á 67 höggum en þann seinni á 68 höggum.

Gunnlaugur Árni var um tíma í öðru sæti á seinni hringnum en varð fyrir áfalli þegar hann fékk skramba á fyrstu holu á seinni níu.

Gunnlaugur byrjaði hringinn sinn á tíundu holu og það var því fyrsta hola vallarins sem reyndist honum svo skeinuhætt. Hann lék par fjögur holuna á sex höggum.

Gunnlaugur datt niður töfluna en lét þetta áfall ekki buga sig heldur svaraði með tveimur fuglum í röð og þremur fuglum á næstu fjórum holum.

Fyrir vikið hoppaði hann aftur upp fyrir línu og var meðal fjögurra efstu þegar þrjár holur voru eftir.

Taugarnar héldu og hann paraði síðustu fjórar holurnar sem tryggði honum sæti í umspilinu.

Vaughn Harber komst í hópinn með því að spila þrjár síðustu holurnar á fjórum höggum undir pari, fékk örn og svo tvo fugla. 

Davis Thompson var efstur og er sá eini sem er öruggur um sæti á US Open.

Gunnlaugur Árni varð í öðru með þeim Sam Udovich, Harber og J.B. Holmes. Udovich fékk skolla á síðustu tveimur holunum sínum og bættist því í hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×