Golf

Ó­trú­legur loka­sprettur og Aron vann þriðja mótið í röð

Valur Páll Eiríksson skrifar
Aron Snær fagnaði sigri í Þorlákshöfn eftir magnaðan lokasprett.
Aron Snær fagnaði sigri í Þorlákshöfn eftir magnaðan lokasprett. Mynd/GSÍ

Aron Snær Júlíusson fagnaði sigri á þriðja móti sumarsins á mótaröð GSÍ og hefur unnið öll þrjú. Hann var tveimur höggum á eftir fyrsta manni fyrir síðustu tvær holurnar.

Powerade-mótið fór fram í Golfklúbbi Þorlákshafnar um helgina og úr varð hin mesta skemmtun. Spennan var mikil á lokahringnum.

Aron Snær var tveimur höggum á eftir Böðvari Braga Pálssyni þegar síðustu tvær holurnar voru eftir á lokahring mótsins í dag. Aron fékk örn á sautjándu braut og fugl á þeirri átjándu á meðan Böðvar fékk einn skolla.

Aron vann þannig fjögur högg á Böðvar og vann mótið, en Böðvar Bragi hafnaði í öðru sæti ásamt Hákoni Erni Magnússyni, tveimur höggum á eftir sigurvegaranum Aroni. Hákon Örn fékk 19 fugla á hringjunum þremur á mótinu, flesta allra.

Fyrsti sigur Evu

Eva er hér önnur frá vinstri. Hún fagnaði sigri í dag.Mynd/GSÍ

Í kvennaflokki stóð Eva Kristinsdóttir úr GM uppi sem sigurvegari. Hún lék hringina þrjá á sex höggum undir pari vallar eftir hringi upp á 73, 68 og 69 högg. Eva hafði hafnað í þriðja sæti á fyrstu tveimur mótum sumarsins en tekur nú stökk upp listann í stigakeppninni með sínum fyrsta sigri.

Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr GA varð önnur á einu höggi undir pari og þær Elsa Maren Steinarsdóttir úr GL og Karen Lind Stefánsdóttir úr GKG deildu þriðja sætinu.

Næsta mót er Íslandsmótið í holukeppni sem fram fer 19.-21. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×