Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar 5. júní 2026 13:45 Notkun varnarefna í landbúnaði hefur aukist verulega um allan heim undanfarna áratugi. Þótt þau séu notuð til að vernda uppskeru hafa rannsóknir tengt langvarandi útsetningu fyrir ákveðnum varnarefnum við hormónaröskun, skerta frjósemi, bólgu, áhrif á taugakerfi og aukna áhættu á sumum tegundum krabbameina. Af hverju skiptir máli að velja lífrænt? Í hefðbundinni ræktun er heimilt að nota fjölbreytt úrval varnarefna, þar á meðal illgresiseyða, skordýraeiturs og sveppadrepandi efna. Í vottaðri lífrænni ræktun er notkun slíkra efna hins vegar mjög takmörkuð eða bönnuð. Þar er meiri áhersla lögð á heilbrigðan jarðveg, skiptiræktun, líffræðilega meindýravörn og sjálfbærar aðferðir sem styðja við vistkerfið. Stór yfirlitsrannsókn í British Journal of Nutrition sýndi að lífrænt ræktaðar afurðir innihalda að jafnaði minna af varnarefnaleifum og þungmálmum en afurðir úr hefðbundinni ræktun. Kadmíum mældist um 48% lægra í lífrænum matvælum og varnarefnaleifar fundust allt að fjórum sinnum oftar í hefðbundinni ræktun (1). Kadmíum eru eitraður þungmálmur sem safnast fyrir í líkamanum og er flokkaður sem fyrsta flokks krabbameinsvaldandi efni, ásamt því að vera tengdur við aukna hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, skjaldkirtilsvandamálum og taugahrörnunarsjúkdómum (2, 3, 4, 5). Lífrænar afurðir innihalda meiri næringu Rannsóknir hafa einnig bent til þess að lífrænt ræktaðir ávextir og grænmeti geti innihaldið meira magn ákveðinna næringarefna og andoxunarefna, þar á meðal C-vítamíns, járns, magnesíums og fosfórs (6). Í stórri yfirlitsrannsókn á 343 rannsóknum kom fram að lífrænt ræktaðar plöntuafurðir innihéldu 18–69% hærri styrk andoxunarefna en sambærilegar afurðir úr hefðbundinni ræktun (7). Börn eru viðkvæmari Í danskri rannsókn mældu vísindamenn styrk varnarefnaleifa í þvagi 144 skólabarna og 145 mæðra þeirra. Niðurstöðurnar sýndu að um 90% þátttakenda voru með mælanleg ummerki varnarefna í líkamanum (8). Athyglisvert er að flest þeirra varnarefna sem rannsökuð voru eru ekki leyfð í Danmörku, sem bendir til að útsetningin komi að stórum hluta frá innfluttum ávöxtum og grænmeti. Þessar niðurstöður vekja áhyggjur, þar sem rannsóknir hafa tengt útsetningu fyrir ákveðnum varnarefnum á meðgöngu og í barnæsku við neikvæð áhrif á heilaþroska, athygli, hegðun og vitræna getu barna (9, 10, 11). Þótt sambærilegar mælingar hafi ekki verið gerðar á Íslandi má ætla að Íslendingar verði einnig fyrir varnarefnaleifum í gegnum innflutt ávexti og grænmeti. Aldrei versla ólífræn ber Ber, á borð við jarðarber, bláber, hindber og vínber eru meðal mest úðuðu afurðanna. Ástæðan er meðal annars sú að þau eru viðkvæm fyrir myglu, skordýrum og sveppasýkingum. Það dugar ekki að skola berin, þar sem sum varnarefni geta setið fast á yfirborðinu á meðan önnur geta borist inn í aldinkjötið sjálft. Af þeim sökum getur verið skynsamlegt að velja lífræn, villt eða íslensk ber. Ef fersk lífræn ber eru ekki fáanleg geta frosin ber verið góður valkostur. Frosin lífræn eða villt ber fást í mörgum verslunum og eru oft hagkvæmari kostur en hefðbundin fersk ber. Roundup talið krabbameinsvaldandi Roundup er illgresiseyðir sem inniheldur virka efnið glýfosat, eitt mest notaða illgresiseyðandi efni á heimsvísu. Roundup hefur jafnframt verið ein þekktasta og umdeildasta vara Monsanto og mikilvæg tekjulind fyrir framleiðandann. Á undanförnum árum hefur Monsanto, sætt fjölda málaferla vegna meintra heilsufarsáhrifa glýfosats. Þar hefur meðal annars verið deilt um möguleg tengsl efnisins við krabbamein, sérstaklega eitilfrumuæxli, og fæðingargalla á svæðum þar sem glýfosat hefur verið notað í miklum mæli. Árið 2015 flokkaði Alþjóðakrabbameinsrannsóknastofnunin (IARC) glyphosate sem „líklega krabbameinsvaldandi fyrir mannfólk“ (12). Glýfosat er enn leyft í Evrópu og á Íslandi, þó með ákveðnum takmörkunum. Umræða um öryggi efnisins heldur áfram, meðal annars vegna mögulegra tengsla við oxunarálag, hormónaröskun, áhrif á þarmaflóru og ákveðin krabbamein. Málið er enn alvarlegra vegna þess að það getur tekið mörg ár, jafnvel áratugi, að banna efni eftir að vísbendingar um skaðsemi koma fram. Saga landbúnaðarefna sýnir að efni sem áður voru talin örugg hafa síðar reynst skaðleg heilsu manna og umhverfi. Samkvæmt Matvælastofnun geta leifar glýfosats fundist í ýmsum matvælum. Í evrópsku matvælaeftirliti árið 2016 fannst glýfosat í 38% sýna af linsubaunum, 20% sýna af hörfræjum, 16% sýna af sojabaunum og 10% sýna af tei. Einnig er það algengt í bókhveiti, byggi, millet, hveiti og rúgi. Þar sem stór hluti þessara matvæla er fluttur inn til Íslands geta Íslendingar einnig orðið fyrir útsetningu í gegnum daglegt mataræði (13). Yfirborðsmeðhöndlun sítrusávaxta – er eitur á hýðinu? Sítrusávextir á borð við sítrónur, appelsínur, mandarínur og klementínur eru oft húðaðir með vaxi sem inniheldur sveppadrepandi efni, gljáefni og rakavarnarefni sem hjálpa til við að halda hýðinu fersku og bæta útlit þeirra. Fyrr í mánuðinum kom grein í Bændablaðinu sem talaði um að á hýði hefðbundna sítrusávaxta mælist oft kokteill af slíkum efnum, sem eru almennt ekki leyfð í lífrænni ræktun. Á sítrusávöxtum má oft finna sveppadrepandi efni eins og imazalil og pyrimethanil, auk vax- og gljáefna. Árið 2022 var Imazalil skráð sem krabbameinsvaldandi efni hjá Heilbrigðis- og umhverfisstofnun Kaliforníu. Pyrimethanil hefur verið tengt við truflanir á hormónakerfi, lifrarstarfsemi og skjaldkirtli, auk þess sem efnið getur haft skaðleg áhrif á lífríki í vatni. Norska matvælaöryggiseftirlitið ráðleggur að neyta ekki barkarins af yfirborðsmeðhöndluðum sítrusávöxtum. Þótt sítrusávextir séu þvegnir geta sum yfirborðsefni setið eftir eða sogast inn í aldinkjötið. Einnig er mælt með að þvo hendur vel eftir meðhöndlun þeirra. Dugir að skola með vatni? Til að minnka varnarefnaleifar á yfirborði ávaxta og grænmetis má leggja afurðirnar í bleyti í 10–15 mínútur í lausn úr 1 teskeið af matarsóda á móti 2 bollum af vatni og skola þær síðan vel undir rennandi vatni. Rannsóknir benda til þess að þessi aðferð geti dregið úr ákveðnum varnarefnaleifum á yfirborði, en hún gerir ekki ólífrænan ávöxt að lífrænum ávexti (14). Sum varnarefni sitja ekki bara utan á matnum, heldur geta þau farið inn í plöntu sjálfa. Þess vegna er skolun góð venja, en ekki fullkomin vörn. “Dirty Dozen og Clean 15” listarnir Á hverju ári eru þúsundir sýna af ávöxtum og grænmeti rannsökuð af bandarískum eftirlitsstofnunum til að mæla magn varnarefnaleifa. Fyrir þá sem hafa ekki alltaf aðgang að lífrænum mat geta listar eins og Dirty Dozen og Clean Fifteen verið gagnleg leið til að forgangsraða. Árið 2026 voru spínat, grænkál, jarðarber, vínber, nektarínur, ferskjur, kirsuber, epli, brómber, perur, kartöflur og bláber á Dirty Dozen-listanum. Þessar afurðir er skynsamlegt að velja lífrænar þegar hægt er. Á Clean Fifteen-listanum 2026 voru ananas, maís, avókadó, papaya, laukur, frosnar grænar baunir, aspas, hvítkál, blómkál, vatnsmelóna, mangó, bananar, gulrætur, sveppir og kiwi. Þessar afurðir mælast almennt með minna magn varnarefnaleifa og geta því verið betri kostur þegar lífrænt er ekki í boði (15). Litlar breytingar geta skipt máli Að velja lífrænt snýst ekki um fullkomnun, heldur um að minnka heildarútsetningu fyrir varnarefnum þar sem það skiptir mestu máli, sérstaklega hjá börnum, barnshafandi konum og þegar um er að ræða matvörur sem mælast oft með mestar varnarefnaleifar. Höfundur er Functional Medicine heilsuráðgjafi hjá fyrirtækinu Holistic ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Anna Lind Fells Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar