Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sindri Sverrisson skrifar 5. júní 2026 12:08 Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð mögnuðum árangri með Gummersbach. Getty/Ronny Hartmann Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, hefur verið valinn þjálfari ársins í sterkustu landsdeild heims í handbolta, þeirri þýsku.
Það eru þjálfarar og stjórnendur í deildinni sem koma að kosningunni og hefur Guðjón Valur nú verið heiðraður fyrir hreint út sagt magnað tímabil með sínu liði. View this post on Instagram A post shared by DAIKIN HBL (@daikin_hbl) Þetta er í annað sinn sem Guðjón hlýtur þennan heiður en hann var einnig valinn árið 2023. Þýska deildin hefur valið þjálfara ársins frá árinu 2002 þegar Alfreð Gíslason, þá þjálfari Magdeburg, var valinn. Guðjón er fjórði Íslendingurinn sem hlýtur þennan heiður því Dagur Sigurðsson var valinn 2011 og Guðmundur Guðmundsson 2014. Alfreð hlaut nafnbótina alls fjórum sinnum, þar af þrisvar með Kiel. Þess ber þó að geta að Handball-Magazin valdi þjálfara ársins á árunum 1984-2013 og varJóhann Ingi Gunnarsson valinn árið 1986en Alfreð Gíslason 2001, 2009, 2011, 2012 og 2013. Lokaumferðin í þýsku deildinni er um helgina en ljóst er að Gummersbach endar í 4. sæti, fyrir ofan lið á borð við Kiel, Lemgo, Evrópudeildarmeistara Melsungen og Rhein-Neckar Löwen. Liðið endar skammt á eftir Flensburg og Füchse Berlín en Magdeburg hafði yfirburði í deildinni og hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu. Guðjón Valur tók við Gummersbach árið 2020, þegar það var í næstefstu deild, og hóf þetta gamla stórveldi upp í efstu deild og nú í hóp fjögurra bestu liða Þýskalands. Ljóst er að liðið leikur í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. View this post on Instagram A post shared by DAIKIN HBL (@daikin_hbl) Forráðamenn Gummersbach hafa verið hvattir til að gera sem fyrst nýjan samning við Guðjón Val, í ljósi þess að evrópsk stórlið hljóti nú að vera með hann í sigtinu, en sjálfur kveðst þessi fyrrverandi landsliðsfyrirliði Íslands pollrólegur yfir stöðunni. Hjá Gummersbach er Guðjón Valur með tvo íslenska lærisveina, þá Elliða Snæ Vignisson og Teit Örn Einarsson.
Þýski handboltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Sjá meira