Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar 5. júní 2026 08:02 Athyglishagkerfið sem börn alast upp við í dag veldur því að kyrrð, einbeiting, tjáning – og sjálft ímyndunaraflið – eiga undir högg að sækja. Sem ráðherra bæði menningar og nýsköpunar er það mér hjartans mál að halda í og virkja sköpunarkraft framtíðar. Barnamenning spilar þar stórt og litríkt hlutverk. Barn sem fær tækifæri til að skapa og tjá sig með fjölbreyttum hætti mótar um leið sína eigin rödd og öðlast kjark til að taka virkan þátt í menningu landsins. Þess vegna er barnamenning ekki munaður heldur grunnforsenda skapandi og lýðræðislegs samfélags. Hún eflir lýðræðisvitund, eykur umburðarlyndi og styrkir sjálfstæði og frumkvæði einstaklinga. Barnamenning fangar ævintýri og ótroðnar slóðir – hvort sem hún birtist í söguskrifum, leikhúsferð, kóræfingu, safnaheimsókn eða söng- og dansatriði á 17. júní. Mögulega í grenjandi rigningu, en eftir stendur tilfinning barnsins fyrir sköpun og gleði. Það er hlutverk okkar að standa vörð um þá tilfinningu og skapa henni farveg því tjáning er dýrmæt. En hvernig gerum við það á tímum aðhalds og samfélagslegra áskoranna á borð við ójöfnuð, tímaleysi og sívaxandi skjánotkun? Við gerum það sem samfélag – með öllu því kröftuga fólki sem kemur að menningu og sköpun á ólíkum stöðum og stigum. Fjölbreytt menningarlandslag gefur besta sprettu og stuðlar að nýjum vaxtarbroddi. Samþætting barnamenningar við starfsemi opinberra menningarstofnana og skólastarfs er lykilatriði svo að menningarupplifanir verði eðlilegur og reglulegur hluti af skólagöngu allra barna. Með auknu aðgengi á öllum aldri getum við sameiginlega tekist á við áskoranir samtímans eins og streitu, skjáfíkn og einmanaleika. Að skapa tækifæri til þátttöku Á síðastliðnu hausti stóðList fyrir alla, sem er sjálfstætt verkefni á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, fyrir ráðstefnunni Öll börn með en hana sóttu fulltrúar menningarstofnana af öllu landinu. Þátttakendur voru sammála um að mikilvægt væri að styrkja enn frekar stoðir barnamenningar og auka aðgengi um land allt. Ég deili þeirri skoðun og í ráðuneytinu er lögð áhersla á að auka samhæfingu á sviði barnamenningar og auka framboð lista, menningar og listfræðslu fyrir börn og ungmenni. Mikilvægt hreyfiafl þessarar sýnar er Barnamenningarsjóður. Hlutverk hans er að fjármagna fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar, með áherslu á sköpun, virka þátttöku og lýðræðislega menningaruppbyggingu barna og ungmenna, í anda Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Barnamenningarsjóður úthlutaði sunnudaginn 31. maí, á degi barnsins, 90 milljónum króna til sjálfstæðra verkefna. Hæstu styrkirnir í ár fara til barnamenningarhátíða víðs vegar um land: Skúnaskrall á Norðurlandi vestra, Undur og Furða á Austurlandi, Barnamenningarhátíð Suðurlands, Púkinn á Vestfjörðum og Barnó – Best mest vest! á Vesturlandi. Auk Barnamenningarsjóðs veita aðrir menningarsjóðir reglulega styrki til verkefna á sviðum barnamenningar svo sem sviðslistasjóður, hönnunarsjóður, tónlistarsjóður og kvikmyndasjóður. List fyrir alla stuðlar með markvissum hætti að fjölbreyttri barnamenningu um allt land. Á síðasta ári komu 140 listamenn að verkefnum List fyrir alla og fengu allir 173 grunnskólar landsins heimsókn og boð á listviðburð. Auk þess býðst öllum grunnskólum þátttaka í verkefnum á borð við Svakalegu lestrarkeppnina og Málæði sem er tónlistarverkefni með áherslu á íslensku. Þetta eru fagleg verkefni sem veita innblástur, kenna listsköpun og hafa tungumálið í forgrunni. Frá safni til sinfóníu Barnamenning verður ekki til af sjálfu sér. Um allt land starfa menningarstofnanir, söfn, leikhús, hljómsveitir og miðstöðvar sem leggja sitt af mörkum til að tryggja börnum aðgang að listum og menningu. Dæmin eru fjölmörg: Öll grunnskólabörn á landinu fá boð um að heimsækja Þjóðleikhúsið og sjá sýningar að minnsta kosti þrisvar sinnum á skólagöngu sinni auk skoðunarferða. Þjóðleikhúsið gefur einnig út fræðsluefni og heldur úti kennaraklúbbi og samskiptum við um 500 kennara. Þjóðminjasafnið er með barnasmiðjur fyrsta sunnudag hvers mánaðar, þar starfa safnakennarar sem taka á móti skólabörnum, jóladagskrá safnsins er margrómuð og reglulegir barnaviðburðir eru haldnir yfir árið. Árnastofnun heldur úti skólafræðslu um handritasýningu og þar starfar safnkennari. Börn eru kynnt fyrir íslenskri handritamenningu og hvernig sögur voru skrifaðar á kálfskinn með fjöðrum og heimatilbúnu bleki. Náttúruminjasafn Íslands býður upp á safnkennslu og barnaviðburði og Íslenski dansflokkurinn býður nemendum á sýningar og sinnir fræðslu. Framlög stofnananna eru fjölbreytt. Listasafn Íslands tekur á móti um 8.000 skólabörnum á ári og heldur úti líflegum krakkaklúbbi. Sinfóníuhljómsveit Íslands býður upp á skólatónleika, fræðslu og fjölbreytta barna- og fjölskylduviðburði, auk þess sem Harpa býður upp á fjölskyldudagskrá og upplifunarrýmið Hljóðhimna. Miðstöð íslenskra bókmennta veitir styrki til útgáfu barna- og ungmennabóka sem skrifaðar eru á íslensku gegnum sérstakan sjóð, Auði. Jafnframt eru veittir styrkir til þýðinga á bókum fyrir börn og ungmenni úr erlendum tungumálum. Bókasafnasjóður styrkir svo hið öfluga og fjölbreytta viðburðastarf bókasafna um allt land. Með framlagningu nýrrar bókmenntastefnu síðar á árinu verður sjónum sérstaklega beint að barna- og ungmennabókmenntum. Hönnunarsafnið stendur fyrir öflugu fræðslustarfi fyrir skólahópa og barnafjölskyldur undir stjórn ÞYKJÓ hönnunarteymisins auk þess sem fjölbreyttar skapandi smiðjur og barnamenningarverkefni eru í boði ár hvert. Hönnunarmiðstöð og Sviðslistamiðstöð hafa komið að þáttagerð fyrir ungmenni á borð við Skapalón og Sviðið sem finna má á heimasíðu List fyrir alla. Nú bætist enn í þá flóru því eitt af þeim verkefnunum sem fékk úthlutun úr barnamenningarsjóði sl. sunnudag er Myndlist fyrir alla en þar er sjónum beint að ólíkum greinum myndlistar.RÚV lætur ekki sitt eftir liggja í barnamenningu og framleiðir fjölbreytt efni ætlað börnum auk þess að taka þátt í fjölda samstarfsverkefna á borð við Málæði og Sögur - verðlaunahátíð barna. Öflugt net barnamenningar Auk opinberra stofnana starfar öflugt net sjálfstæðra aðila sem þróa ný verkefni, halda hátíðir og skapa börnum vettvang til þátttöku með stuðningi ráðuneytisins. Dansverkstæðið býður upp á vinnustofudvöl fyrir listafólk til að semja barnaverk og Rithöfundasamband Íslands stendur fyrir Skáld í skólum sem notið hefur mikilla vinsælda. Ráðuneytið styrkir Bandalag íslenskra leikfélaga og áhugaleikfélögin í gegnum úthlutunarsjóð áhugaleikfélaga. Þau sinna grasrótarstarfi um allt land þar sem oft er boðið uppá barnaverk í héraði, börn taka þátt í uppsetningum sýninga eða í leiklistarnámskeiðum. Assitej, samtök sviðslistahópa og leikhúsa fyrir unga áhorfendur, standa svo fyrir Unga, sviðslistahátíð fyrir unga áhorfendur. Sóknaráætlanir landshluta styðja við margvísleg barnamenningarverkefni, bæði sem áhersluverkefni og verkefni sem njóta styrkja úr Uppbyggingarsjóði svo sem barnamenningarhátíðir um land allt. Unnið er að því að byggja upp kröftugt barnamenningarstarf í öllum landshlutum, meðal annars í gegnum menningarsamninga.Samvinna er dýrmætt afl í mörgum þessara verkefna. Þannig er ráðuneytið styrktaraðili Listahátíðar Reykjavíkur sem nú stendur yfir og skartar glæsilegri fjölskyldudagskrá. Einnig má nefna tilfallandi verkefni sem eru að hluta til eða heild miðuð að börnum svo sem Sundlaugarsumarið - viðburðaröð í samstarfi við Þjóðminjasafnið í tengslum við skráningu sundlaugarmenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. 25% þjóðarinnar Líkt og þessi upptalning sýnir – þótt hún sé langt frá því að vera tæmandi – er barnamenning öflugt net verkefna, stofnana og frumkvöðla um allt land. Börn og ungt fólk eru fjórðungur þjóðarinnar og því skiptir máli að tryggja þeim aðgengi að listum og menningu hér og nú, því menningarhúsin eru líka þeirra. Þegar börn og ungt fólk fá að taka virkan þátt í menningarlífinu – í skólum, á bókasöfnum, í leikhúsum, á söfnum og á stafrænum vettvangi – erum við ekki aðeins að efla listir. Við erum að rækta víðsýni, tjáningarfrelsi, samkennd og lýðræðislega þátttöku. Við erum að leggja grunn að samfélagi framtíðarinnar. Framboðið er fjölbreytt en menning verður ekki til án þátttöku. Þess vegna hvet ég fullorðna fólkið til að fara með yngri kynslóðina á þá viðburði sem vekja áhuga þeirra og styðja þau í að rækta hugrekki sitt, forvitni og sköpunargleði. Ekkert af þessu væri mögulegt án fjölmargs listafólks, kennara, starfsfólks safna og menningarhúsa, sjálfboðaliða og annarra eldhuga sem leggja barnamenningu lið á hverjum degi. Fyrir það ber að þakka. Barnamenning er fjárfesting í samfélaginu öllu. Höfundur er menningar-, nýsköpunar, og háskólaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Logi Einarsson Menning Börn og uppeldi Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar