Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Eiður Þór Árnason skrifar 4. júní 2026 22:09 Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með deilu flugstétta og Icelandair á sínu borði. Jón Þór Þorvaldsson til vinstri við Ástráð er formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og jafnframt flugmaður hjá fyrirtækinu. Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair, til hægri á myndinni. Hreyfing er í kjaraviðræðum Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), að sögn ríkissáttasemjara. Icelandair hafi í kvöld kynnt heildstæðari nálgun á kjaramál flugmanna sem fulltrúar þeirra hafi nú til skoðunar. Fundi samningsaðila lauk um klukkan 21:35 í Karphúsinu og hafði staðið yfir frá 19:00. „
Það var farið yfir umfangsmiklar hugmyndir og tillögur um breytingar á kjarasamningi sem Icelandair hafði verið að vinna á undanförnum dögum. Það fór fram kynning á þessu og svona smá umræður en það hefur engin afstaða verið tekin til þessara tillagna enn þá,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við Vísi. FÍA muni kynna sér tillögurnar á næstu dögum og hann bindi vonir við að samninganefnd flugmanna leggi fram tillögur eða gagntilboð í kjölfarið. Ekki hefur enn verið boðað til nýs fundar í deilunni. „FÍA-menn þurfa tóm til þess að skoða þessar hugmyndir, móta einhver viðbrögð og fá rými til þess allavega fram á morgundaginn. Við sjáum til hvað við þurfum mikinn tíma.“ Kjarasamningar FÍA og Icelandair hafa verið lausir frá því í september. Ekkert annað í boði en að semja „Það er mín von að við séum allavega komin á ákveðna braut sem við gætum mögulega fetað einhvern veginn. En það er auðvitað alveg ómögulegt að segja um það enn þá, því það liggja ekki fyrir nein viðbrögð gagnaðilans,“ segir Ástráður. „Ef hægt er að finna einhverja fleti sem að aðilarnir geta skipst á skoðunum um og eftir atvikum unnið áfram saman þá er það allavega svona skref í rétta átt. Það á svolítið eftir að koma í ljós.“ „Allavega þá held ég að öllum aðilum sé ljóst að það er auðvitað ekkert annað í boði heldur en að finna sameiginlega niðurstöðu.“ Ríkissáttasemjari hefur áður beint þeim tilmælum til fulltrúa Icelandair og flugmanna að forðast að tjá sig um stöðu viðræðna við fjölmiðla. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Sjá meira