Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Freyja Þórisdóttir skrifar 4. júní 2026 14:27 Kristján segir engin áform um að stilla upp risastórum gerviís í brauðformi á þaki turnsins, myndin hafi einungis verið hugsuð til þess að vekja athygli á opnuninni. Ísfabrikan/Aðsend Söluturninn á Lækjartorgi fær nýtt líf í næstu viku en til stendur að opna þar ísbúðina Ísfabrikkuna. Nýir eigendur stefna á að framleiða og selja „fyrsta flokks ís úr alvöru hráefnum“ en einnig verður boðið upp á kaffi til sölu.
Eitt helsta kennileiti miðbæjarins, söluturninn á Lækjartorgi, hefur hlotið margs konar mismunandi hlutverk í gegnum tíðina. Hann hefur verið blaðsöluturn, hljómturn og þar var einnig á tímabili talsími fyrir almenning. Nú verður þó í fyrsta sinn rekin í turninum ísbúð en nýir eigendur stefna á búðina í næstu viku, þann 10. júní. Greint var frá opnuninni á Facebook-síðu Ísfabrikunnar. „Hugmyndin að Ísfabrikkunni er búin að vera lengi á lofti en undirbúningur hófst fyrir um þremur árum,“ segir Kristján Páll Rafnsson, sem á fyrirtækið ásamt Magdalenu Szczotka, í samtali við blaðamann Vísis og bætir því við að þau hafi sótt námskeið í svokallaðri gelató-gerð. „Við erum búin að flakka um allan heim og skoða ísgerðir og búðir þannig að innblástur fyrir ísinn kemur víða að,“ segir Kristján og nefnir sem dæmi Argentínu, Sikiley, Bologna, New York og fleiri lönd og borgir. Stefna á að opna á fleiri stöðum Hann segir í samtali við blaðamann Vísis frá því að þau leggi mikla áherslu á gæða hráefni og að þau séu með framleiðsluna í Garðabæ. „Við vorum að búa til níu kíló af jarðarberjaís í gær og í hann fóru rúm fimm kíló af jarðarberjum, ásamt mjólk, rjóma og sykurtegundum,“ segir Kristján og bætir við að þau stefni á að ísinn verði fáanlegur á nokkrum stöðum á Íslandi áður en langt um líður. Hann hafi oft keypt sér kók og prins póló í þessum turni þegar hann var lítill og finnist spennandi að taka þátt í að veita turninum nýtt líf. Turninn fór á flakk Turninn sjálfur á sér aldargamla sögu en hann var upprunalega reistur sem söluturn á Lækjartorgi árið 1907. Tíu árum síðar fór hann á flakk og stóð lengst af á horni Kalkofnsvegar og Hverfisgötu. Árið 1972 eignaðist borgin síðan turninn og tæpum fjórum áratugum síðar, árið 2010, fékk hann aftur sinn sess á Lækjartorgi. „Ég fagna því að Turninn sé kominn á sinn gamla stað. Hann er til prýði á torginu og mun örugglega vekja upp minningar í hugum margra borgarbúa,“ sagði Jón Gnarr, þáverandi borgarstjóri, þegar ákveðið var að flytja Turninn á sinn gamla stað.
Neytendur Ís Reykjavík Veitingastaðir Matur Matvælaframleiðsla Tengdar fréttir Gamli söluturninn fluttur aftur á Lækjatorg Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun flutning gamla söluturnsins sem nú stendur í Mæðragarðinum aftur á Lækjartorg þar sem hann mun lífga upp á ásýnd miðborgarinnar. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar turninum 19. ágúst 2010 13:28 Gamli turninn á Lækjartorgi fær nýtt hlutverk Gamli söluturninn á Lækjartorgi, sem hefur lengi vel verið eitt helsta kennileiti miðbæjarins, fær nýtt hlutverk á næstunni þegar honum verður breytt í hljómturn en til stendur að gera turninn að miðpunkt tónlistar í miðbænum. 12. apríl 2022 11:42 Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira
Gamli söluturninn fluttur aftur á Lækjatorg Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun flutning gamla söluturnsins sem nú stendur í Mæðragarðinum aftur á Lækjartorg þar sem hann mun lífga upp á ásýnd miðborgarinnar. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar turninum 19. ágúst 2010 13:28
Gamli turninn á Lækjartorgi fær nýtt hlutverk Gamli söluturninn á Lækjartorgi, sem hefur lengi vel verið eitt helsta kennileiti miðbæjarins, fær nýtt hlutverk á næstunni þegar honum verður breytt í hljómturn en til stendur að gera turninn að miðpunkt tónlistar í miðbænum. 12. apríl 2022 11:42