Undir yfirborðinu leynist framtíðin Silja Elvarsdóttir og Hafdís Hanna Ægisdóttir skrifa 4. júní 2026 10:30 Undir yfirborðinu leynist ein mikilvægasta undirstaða lífs á jörðinni. Heilbrigður jarðvegur veitir plöntum vatn og næringarefni, bindur kolefni, síar og hreinsar vatn og hýsir ótrúlega fjölbreytni lífvera. Þegar við ræðum loftslagsbreytingar, líffræðilega fjölbreytni eða lýðheilsu gleymum við stundum að þessi viðfangsefni eru öll nátengd heilbrigði jarðvegsins. Undirstaða lífsins Um 95% þeirrar fæðu sem mannkynið neytir á uppruna sinn í jarðvegi. Samt er talið að um þriðjungur alls jarðvegs heims hafi þegar rýrnað vegna rofs og ósjálfbærrar landnýtingar. Þetta er ekki aðeins viðfangsefni landbúnaðar eða náttúruverndar heldur snýst um fæðuöryggi, loftslag, líffræðilega fjölbreytni og velferð samfélaga. Í jarðvegi má finna mikla líffræðilega fjölbreytni; ótal örverur, sveppir, skordýr og aðrar lífverur vinna þar saman að því að viðhalda frjósemi jarðvegs og styðja við þau vistkerfi sem við reiðum okkur á á hverjum degi. Á sama tíma geymir jarðvegur meira kolefni en gróður og andrúmsloftið samanlagt og er stærsti kolefnisforði á landi. Verndun og endurheimt jarðvegs getur því gegnt lykilhlutverki í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Heilbrigð mold, heilbrigt fólk Mikilvægi moldar snýst þó ekki aðeins um náttúruna. Gæði jarðvegs hafa bein áhrif á næringargildi matvæla sem við neytum og þar með á heilsu okkar til lengri tíma. Rannsóknir benda í auknum mæli til þess að fjölbreytni örvera í umhverfi okkar geti haft jákvæð áhrif á heilsu manna, meðal annars með því að styðja við heilbrigða þróun ónæmiskerfisins. Tengsl manna við heilbrigð vistkerfi eru því ekki aðeins umhverfismál heldur einnig lýðheilsumál. Þessi tengsl milli náttúru, loftslags og heilsu verða sífellt skýrari. Nýlega hvatti nefnd um loftslag og heilsu, undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina til að lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi í lýðheilsumálum vegna loftslagsbreytinga. Nefndin bendir á að áhrif loftslagsbreytinga á lýðheilsu birtist meðal annars í ógn við matvæla- og vatnsöryggi, versnandi loftgæðum og raski á vistkerfum, með aukinni útbreiðslu smitsjúkdóma sem einni af afleiðingunum. Kannski er kominn tími til að beina sjónum oftar niður á við. Heilbrigður jarðvegur er forsenda frjósamra landvistkerfa, næringarríkrar fæðu, hreins vatns og öflugrar kolefnisbindingar. Með öðrum orðum: margt af því sem skiptir mestu máli fyrir framtíð okkar á sér rætur í moldinni undir fótum okkar. Í dag, miðvikudaginn 4. júní kl. 16:00, fer fram málþingið Undir yfirborðinu: Mikilvægi moldar í Norræna húsinu. Þar munu sérfræðingar úr ólíkum greinum fjalla um þessa mikilvægu auðlind og tengsl hennar við náttúru, loftslag og heilsu. Að erindum loknum fara fram pallborðsumræður og gestir fá jafnframt innsýn í sýninguna Himna, sem opnar í Norræna húsinu 6. júní. Verið öll hjartanlega velkomin. Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ Silja Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Norræna Húsinu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar