Næstum fjórir af hverjum tíu Íslendingum lesa skilaboð undir stýri Gunnar Geir Gunnarsson og Lára Hrafnsdóttir skrifa 4. júní 2026 07:45 Þrátt fyrir að nær allir Íslendingar viti að farsímanotkun undir stýri sé hættuleg sýna nýjustu gögn að sífellt fleiri ökumenn lesa og skrifa skilaboð við akstur. Þróunin vekur áhyggjur enda er skert athygli einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa. Samkvæmt viðhorfskönnun Samgöngustofu árið 2025 hefur farsímanotkun undir stýri aukist á ný eftir jákvæðan samdrátt milli áranna 2023 og 2024. Hlutfall þeirra sem segjast oft, stundum eða sjaldan skrifa skilaboð við akstur hækkaði úr 27,7 prósentum árið 2024 í 31,1 prósent árið 2025. Á sama tíma jókst hlutfall þeirra sem segjast lesa skilaboð við akstur úr 35,8 prósentum í 39,4 prósent. Þetta þýðir að nær fjórir af hverjum tíu ökumönnum viðurkenna að lesa skilaboð undir stýri, þrátt fyrir að rannsóknir sýni að slík hegðun geti haft alvarlegar afleiðingar. „Ég var bara aðeins að…” Skert athygli vegna farsímanotkunar er meðal helstu orsaka umferðarslysa. Talið er að allt að 25 prósent allra umferðaróhappa og slysa megi rekja beint til notkunar farsíma við akstur. Rannsóknir sýna jafnframt að fólk sé allt að 23 sinnum líklegra til að lenda í umferðarslysi þegar það les eða skrifar skilaboð undir stýri. Margir telja að það sé tiltölulega saklaust að líta stuttlega á skjáinn, sérstaklega þegar ekið er á litlum hraða. Raunin er þó önnur. Ökumaður sem ekur á 40 kílómetra hraða á klukkustund fer um 56 metra á fimm sekúndum, sem er um það bil sá tími sem það tekur að lesa eða skrifa stutt skilaboð. Á þeim tíma hefur ökutækið farið vegalengd sem jafngildir meira en hálfri lengd knattspyrnuvallar eða um ellefu til tólf einbýlishúsum í röð. Þannig að þó að manni finnist maður bara vera aðeins að senda örstutt svar þá getur slíkt viðhorf haft alvarlegar afleiðingar. Í íbúðargötum getur slík truflun á athygli skipt sköpum. Börn á leið í skóla, hjólreiðafólk eða gangandi vegfarendur geta birst skyndilega á akbrautinni og viðbragðstíminn sem tapast getur ráðið úrslitum. Mega skilaboðin bíða? Það sem vekur sérstaka athygli er hversu mikil mótsögn birtist í niðurstöðum könnunarinnar. Samkvæmt henni telja 96 prósent Íslendinga að það sé hættulegt að skoða skilaboð undir stýri. Samt segjast 39,4 prósent gera það. Þetta bendir til þess að vandinn sé ekki skortur á vitund heldur sá að við hegðum okkur gegn betri vitund. Farsíminn er órjúfanlegur hluti af daglegu lífi fólks og mörg upplifum við þrýsting um að vera stöðugt tengd og bregðast hratt við skilaboðum. Gott er að spyrja sig hvort lestur skilaboða eða svar við þeim megi bíða. Sjaldnast eru þau brýn né þess eðlis að þau geti ekki beðið þar til ferðinni lýkur. Þetta er samfélagslegt öryggismál sem snertir okkur öll. Afleiðingar þess að missa athyglina af veginum geta verið óafturkræfar. Ef nauðsynlegt er að lesa eða senda skilaboð er best að leggja bílnum eða keyra út í kant og stöðva ökutækið áður en síminn er tekinn upp. Brot sem getur kostað meira en sekt Lög á Íslandi kveða skýrt á um að óheimilt sé að nota farsíma eða önnur snjalltæki við akstur nema með handfrjálsum búnaði. Viðurlög við slíku broti eru 40 þúsund króna sekt og einn refsipunktur í ökuferilsskrá. Fjárhagslegi kostnaðurinn er þó oft minnsta áhyggjuefnið. Ef skortur á athygli vegna farsímanotkunar leiðir til slyss geta afleiðingarnar orðið alvarlegar og í versta falli varanlegar fyrir öll sem hlut eiga að máli. Síminn er órjúfanlegur hluti af tilveru okkar margra en samt sem áður þurfum við að velja okkur stað og stund til þess að nota símann. Síminn og akstur fara einstaklega illa saman og einmitt þess vegna er hægt að stilla símann á akstursstillingu. Einungis þarf að stilla símann einu sinni og eftir það truflar hann okkur ekki á meðan við keyrum. Hægt er að sjá myndbönd um akstursstillingu á síðunni www.skjahaetta.is. Samgöngustofa og Sjóvá minna ökumenn nú á með nýrri vitundarvakningarherferð að 100% athygli við akstur sé eina leiðin. Afleiðingar þess að líta af veginum geta varað ævilangt. Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis og fræðsludeildar Samgöngustofu Lára Hrafnsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og þjónustuupplifunar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umferðaröryggi Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar