Handbolti

„Þetta hefði ekki getað endað betur“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Arnar Freyr er á förum frá Melsungen en skilur við félagið í frábærum málum.
Arnar Freyr er á förum frá Melsungen en skilur við félagið í frábærum málum. EHF EUROPEAN LEAGUE

Handboltamaðurinn Arnar Freyr Arnarsson fékk hinn fullkomna endi á tíma sínum hjá Melsungen þegar hann varð Evrópudeildarmeistari um helgina.

Arnar hefur upplifað tímana tvenna á sínum sex árum hjá félaginu en ekki fagnað meistaratitli fyrr en um helgina.

Melsungen vann Evrópudeildina eftir sigur gegn Flensburg í undanúrslitum og hádramatískan eins marks sigur gegn Kiel í úrslitaleiknum. Arnar skoraði tvö mörk í báðum leikjum. 

„Hvað á maður að segja? Þetta var bara yndislegt, ólýsandi,“ sagði Arnar hress í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi.

Miðað við stöðu þessara þýsku liða í deildinni heima fyrir var Melsungen klárlega ekki talið sigurstranglegt gegn Flensburg og Kiel.

„Alls ekki. Við vorum underdogs en við vorum þarna í fyrra líka, þannig að við vorum með reynsluna og okkur langaði rosa mikið til að sigra þetta í ár. En jú það má alveg segja að við höfum verið léttir underdogs þarna.“

Þetta var líka ekki bara fyrsti titill Arnars hjá Melsungen heldur fyrsti titillinn í sögu þessa félags, sem hefur verið í mikilli uppbyggingu undanfarin ár.

„Það var búið að vera mikið af róteringum í liðinu en undanfarin þrjú ár hefur sami kjarninn verið. Og þessi kjarni hefur verið að komast í Final Four helgar og svona. Það er mjög mikilvægt í svona stórum og löngum keppnum að halda í sama kjarna.“

Arnar kveður Melsungen sem Evrópudeildarmeistari.EHF EUROPEAN LEAGUE

Línumaðurinn mun svo vitja nýrra ævintýra hjá Flensburg á næsta tímabili en fékk hina fullkomna kveðjustund.

„Þetta hefði ekki getað endað betur. Maður er búinn að vera hérna í sex ár, þannig að þetta er langur tími. Frábært að enda tímabilið og minn tíma hér hjá Melsungen með einum titli, það bara gerist ekki betra.“

Bikar á loft! EHF EUROPEAN LEAGUE

Reynir Þór Stefánsson er einnig leikmaður Melsungen og varð Evrópudeildarmeistari um helgina. Hann er á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu en verður ekki lengi eini Íslendingurinn í Melsungen. Kærasta hans, handboltakonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, er á leið út í atvinnumennsku. 


Tengdar fréttir

„Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“

Handboltakonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín heillaði þýskan þjálfara á HM með íslenska landsliðinu og flytur í sumar til Þýskalands, þar sem kærasti hennar spilar einnig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×