„Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 2. júní 2026 12:53 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, var staðfest sem nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar á fyrsta borgarstjórnarfundi kjörtímabilsins nú í hádeginu. „
Hann leggst ofsalega vel í mig, það er fallegt veður og góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík,“ sagði Hildur fyrir fundinn aðspurð um hvernig dagurinn færi í hana. Fundurinn hófst klukkan tólf og var Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, kjörin forseti borgarstjórnar. Þá var Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, kjörinn formaður borgarráðs. Samkvæmt meirihlutasamningi flokkanna þriggja munu Björg og Einar skiptast á hlutverkum þann 1. júní 2027. „Takk innilega fyrir traustið. Ég segi eins og fráfarandi borgarstjóri að það verður heiður lífs míns að fá að gegna þessu stóra og veigamikla embætti. Ég er full tilhlökkunar og líka auðmjúk og lofa að vanda mig,“ sagði Hildur eftir kjörið. Hildur Björnsdóttir og Heiða Björg Hilmisdóttur föðmuðust á borgarstjórnarfundi í dag þegar Heiða lét af störfum sem borgarstjóri og Hildur tók við.Vísir/Vilhelm Auk kosninga fulltrúa í hin ýmsu ráð borgarinnar leggur nýr meirihluti fram tólf tillögur á þessum fyrsta fundi. Meðal þess er að stofna þrjú ný ráð, leikskóla- og dagskólaráð, menningarráð og öldungaráð. Sömuleiðis vill meirihlutinn leggja niður stafrænt ráð og gera breytingar á verkefnum menningar- og íþróttaráðs. „Ég er mjög ánægð með þessi fyrstu mál og við munum halda áfram á næstu dögum og vikum að framfylgja okkar loforðum og okkar verkefnalista,“ segir Hildur. Til að almenningur geti fylgst með framvindu verkefnanna hefur vefsíðan verkefnalisti.is verið stofnuð. Þar er hægt að sjá verkefnalista meirihlutans.
Borgarstjórn Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira