Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Bjarki Sigurðsson skrifar 31. maí 2026 16:36 Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu. Vísir/Anton Brink Formaður Afstöðu segir sjálfsvíg innan veggja fangelsa allt of algeng. Félagið mun sinna jafningjastuðningi og ráðgjöf næstu daga eftir að maður svipti sig lífi á Hólmsheiði. Í morgun var greint frá því að fangi á Hólmsheiði hefði látið lífið. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, staðfestir að maðurinn hafi svipt sig lífi. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Þetta er auðvitað hræðilegur atburður sem er kannski sjaldgæfur, en samt allt of algengur. Það hefur farið fram sálgæsla í dag fyrir starfsfólk og fanga. Svo munum við eiga fund með Fangelsismálastofnun til að undirbúa jafningjastuðning og ráðgjöf fyrir næstu vikur. Það er oft langur tími sem það tekur að jafna sig af svona hræðilegum atburði,“ segir Guðmundur. Tíðni sjálfsvíga innan fangelsa sé hærri en úti í samfélaginu. „Við erum með mjög lítið fangelsiskerfi en þetta er ágætis áminning um að heilsugæsla, geðheilsumál og sálfræðiþjónusta þurfi að vera í góðu lagi, sem er ekki. Það er búið að vera að vinna í ýmsum breytingum sem við erum að vonast til að verði betri. Það þarf bara að leggjast vel yfir þetta. Það eru allir sammála um að fangelsiskerfið sé ekki á nógu góðum stað. Það er ekki nóg að laga bara ákveðna þætti, það þarf að fara í það í heild,“ segir Guðmundur. Samkvæmt heimildum fréttastofu afplánaði maðurinn dóm fyrir manndráp. Andlát í fangelsum landsins eru ekki algeng en gerast þó. Fjallað var um andlát manns á Hólmsheiði árið 2023 sem var það fyrsta frá því að fangelsið var tekið í notkun. Þá var einnig greint frá andláti manns á Litla-Hrauni árið 2024. Fangelsismál Reykjavík Lögreglumál Geðheilbrigði Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira
Í morgun var greint frá því að fangi á Hólmsheiði hefði látið lífið. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, staðfestir að maðurinn hafi svipt sig lífi. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Þetta er auðvitað hræðilegur atburður sem er kannski sjaldgæfur, en samt allt of algengur. Það hefur farið fram sálgæsla í dag fyrir starfsfólk og fanga. Svo munum við eiga fund með Fangelsismálastofnun til að undirbúa jafningjastuðning og ráðgjöf fyrir næstu vikur. Það er oft langur tími sem það tekur að jafna sig af svona hræðilegum atburði,“ segir Guðmundur. Tíðni sjálfsvíga innan fangelsa sé hærri en úti í samfélaginu. „Við erum með mjög lítið fangelsiskerfi en þetta er ágætis áminning um að heilsugæsla, geðheilsumál og sálfræðiþjónusta þurfi að vera í góðu lagi, sem er ekki. Það er búið að vera að vinna í ýmsum breytingum sem við erum að vonast til að verði betri. Það þarf bara að leggjast vel yfir þetta. Það eru allir sammála um að fangelsiskerfið sé ekki á nógu góðum stað. Það er ekki nóg að laga bara ákveðna þætti, það þarf að fara í það í heild,“ segir Guðmundur. Samkvæmt heimildum fréttastofu afplánaði maðurinn dóm fyrir manndráp. Andlát í fangelsum landsins eru ekki algeng en gerast þó. Fjallað var um andlát manns á Hólmsheiði árið 2023 sem var það fyrsta frá því að fangelsið var tekið í notkun. Þá var einnig greint frá andláti manns á Litla-Hrauni árið 2024.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Fangelsismál Reykjavík Lögreglumál Geðheilbrigði Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira