Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Bjarki Sigurðsson skrifar 29. maí 2026 21:00 Ásdís Kristjánsdóttir leiddi Sjálfstæðismenn í Kópavogi í sögulegum kosningum. Í fyrsta sinn er flokkurinn með hreinan meirihluta í sveitarfélaginu. Vísir/Vilhelm Tæpum tveimum vikum eftir kosningar eru flestöll sveitarfélög landsins búin að mynda meirihluta. Fjölmargir nýir bæjar- og sveitarstjórar hafa verið kynntir til sögunnar, sem og einn nýr borgarstjóri.
Sjálfstæðisflokkurinn er ótvíræður sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna á landsvísu. Flokkurinn var sá stærsti í öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og með hreinan meirihluta í þremur þeirra. Sjálfstæðisflokkurinn verður í meirihluta þetta kjörtímabilið í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögum landsins. Samfylkingin er samstarfsflokkur í Hafnarfirði, Suðurnesjabæ og Hveragerði, Viðreisn í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ og Framsókn í Reykjavík, Akureyri, Akaranesi, Múlaþingi og Fjarðabyggð. Á Akureyri er unnið með L-listanum, í Skagafirði Byggðalistanum, Reykjanesbæ Miðflokknum og Borgarbyggð með Borgarbyggðarlistanum. Bæjarstjórar og meirihlutar Hreinn meirihluti náðist í Kópavogi, Garðabæ, Árborg, Seltjarnarnesi, Vestmannaeyjum og Ölfusi. Eftir á að kynna meirihluta í Norðurþingi en flokkurinn verður í minnihluta á Ísafirði. Búið er að velja bæjar-, sveitar-, eða borgarstjóra í sextán þessara sveitarfélaga, þar af eru átta nýir. Hildur Björnsdóttir tekur við í Reykjavík, Þórður Þórarinsson Hafnarfirði, Vilhjálmur Árnason Reykjanesbæ, Berglind Ósk Guðmundsdóttir Akureyri, Hilmar Gunnarsson Mosfellsbæ, Magnús Barðdal Skagafirði, Gylfi Ólafsson Ísafirði og Ingimar Guðmundsson Hveragerði. Átta halda sínum póstum en eftir því sem fréttastofa kemst næst á eftir að staðfesta stjóra í fjórum sveitarfélögum. Sjálfstæðisflokkurinn er alls staðar í meirihluta nema á Ísafirði.Vísir/Hjalti Mörg ný andlit prýða myndina en einnig önnur þekktari.Vísir/Sara
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira