Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Birgir Olgeirsson skrifar 29. maí 2026 17:56 Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari. Vísir/Vilhelm Fundi samninganefnda Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara lauk í dag án þess að boðað væri til nýs fundar. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissáttasemjara verður ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina.
Flugmenn Icelandair hafa verið samningslausir frá síðasta hausti. Viðræður hafa þokast hægt og ekkert samkomulag virðist í sjónmáli eins og sakir standa. Deilan snýst að hluta um vinnuframlag flugmanna en einnig um kröfu Icelandair um aukinn sveigjanleika í rekstri. Þar undir falla meðal annars heimildir til að leigja flugvélar með áhöfnum frá öðrum flugfélögum og breytingar á forgangsrétti flugmanna til alls flugs á vegum félagsins. Þar koma einnig til sögunnar fyrirætlanir Icelandair um kaup á 49 prósenta hlut í Play Europe, sem rekið er á maltnesku flugrekstrarleyfi. Deila um aflýsingar Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna áhafnaskorts, þar á meðal tveimur í dag. Félagið segir flugmenn hafa samstillt hætt að selja frídaga, líkt og gerðist í kjaradeilu árið 2014. Flugmenn hafna því og segja ábyrgðina liggja hjá Icelandair. Félagið hafi lagt upp með flugáætlun sem stæði og félli með því að hægt væri að kaupa frídaga af flugmönnum. Þrátt fyrir aflýsingarnar hafa 98,3 prósent ferða Icelandair komist á áfangastað það sem af er maí, samanborið við 99 prósent í fyrra. Stundvísi félagsins er 80 prósent í mánuðinum, samanborið við 84 prósent á sama tíma í fyrra. Fjárfestar horfa til rekstrarins Á sama tíma hafa fjárfestar lýst áhyggjum af framtíðarrekstri Icelandair og því hvort reksturinn sé sjálfbær miðað við núverandi kjarasamninga og rekstrarforsendur. Frá árinu 2018 hefur Icelandair tapað um 80 milljörðum króna, þrátt fyrir hagnað árið 2023 og mettekjur í fyrra. Umræðan snýst því ekki aðeins um kaup og kjör flugmanna, heldur einnig hvort Icelandair geti orðið nægilega samkeppnishæft til að snúa rekstrinum við og sannfæra fjárfesta um að félagið standi undir sér. Stærsti einstaki hluthafi Icelandair er bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Bain Capital með 17,2 prósenta hlut. Íslenskir lífeyrissjóðir meðal tuttugu stærstu hluthafa eiga hins vegar saman um 21,25 prósent í félaginu, eða meira en stærsti einstaki hluthafinn. Tuttugu stærstu hluthafar Icelandair eiga rúman helming félagsins og tæp 74 prósent hlutafjár eru skráð á íslenska aðila. Deilan snertir því ekki aðeins stjórnendur Icelandair og flugmenn félagsins. Hún varðar einnig verðmæti félagsins, vilja eigenda til að styðja það áfram og eignir sem íslenskt launafólk á óbeint í gegnum lífeyrissjóði. Flugsamgöngur gegna jafnframt lykilhlutverki í ferðaþjónustu, sem skapaði 628 milljarða króna í gjaldeyristekjur í fyrra, eða 32 prósent af heildarútflutningi vöru og þjónustu.
Icelandair Kjaramál Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Sjá meira