Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Þórarinn Þórarinsson skrifar 27. maí 2026 15:37 Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason segist telja að hann hafi verið fenginn í heimildarþáttinn um Davíð Oddsson, „sem margir æsa sig nú yfir“, sem einhvers konar viðbragð við offramboði á lofi um afrek Davíðs.
Hallgrímur Helgason hefur brugðist á Facebook við þeirri reiðiöldu sem á honum skall í kjölfar þess að RÚV sýndi heimatilbúinn heimildarþátt um Davíð Oddsson en innkoma hans og orð sem hann lét þar falla komu vægast sagt illa við margan Sjálfstæðismanninn.„Sá loks myndina um Davíð sem margir æsa sig nú yfir. Það er sannarlega nokkuð furðulegt að fólk ætlist til að stjórnmálamaður sem fór með himinskautum okkar og skipti þjóðinni í fylkingar fái hreina aðdáun sem eftirmæli. Er ekki full mikil meðvirkni að ætlast til þess? Ég held ég hafi einmitt verið fenginn í þáttinn vegna þess að offramboð var á lofi um afrek Davíðs. Sum þeirra snerust upp í andstæðu sína og öll fórum við í gegnum þennan tíma lituð af valdatíð foringjans. Það slapp enginn.“ Hallgrímur heggur síðan í sama knérunn þegar hann segir Íslendinga hafa fengið smjörþef af því „hvernig er að búa í konungsríki“ á valdatíma Davíðs. „Annaðhvort varstu í náð eða ónáð. Ég tók upp hanskann fyrir síðarnefnda hópinn og hlaut í staðinn þá merkingu sjálfur, sat með honum í klukkutíma þar sem hann reyndi að koma mér á rétta braut en hótaði síðan brottrekstri föður míns úr starfi þegar hann sá að það gekk ekki. Þetta var auðvitað galið.“ Mætti undirbúinn til leiks Þá segist Hallgrímur hafa mætt í upptöku á viðtalinu fyrir þáttinn með undirbúnar línur sem hann reyndi að hafa stuttar. „En samt voru þær auðvitað of langar og fengu ekki allar pláss í klippinu. Hef skilning á því en verð þó að viðurkenna að það var smá erfitt að horfa á sumar setningarnar, sem voru frumlag að ákveðinni hugsun, fá ekki sitt andlag.“ Hallgrímur skautar síðan vítt og breitt í kringum ýmsar vörður á langri vegferð Davíðs og bendir á að í þættinum hafi verið „semsagt skuggahliðar á glæstum sigrum og glansandi ímynd. Soldið furðulegt að fólk sé að heimta fulla aðdáun á manni sem byggði feril sinn á því að krefjast aðdáunar en ónáðar ella. Átti ónáðin að þegja áfram út yfir dauða konungs?“
Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Andlát Davíðs Oddssonar Ríkisútvarpið Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira