Væri alveg til í að taka markið á mig Gunnar Egill Daníelsson skrifar 25. maí 2026 22:10 Jakobína Hjörvarsdóttir átti glimrandi leik. Vísir/Diego Jakobína Hjörvarsdóttir var sem klettur í hjarta varnar Stjörnunnar þegar liðið vann sterkan útisigur á Þrótti Reykjavík, 1-0, í 6. umferð Bestu deildarinnar í fótbolta á AVIS vellinum í kvöld. „
Líðanin er mjög góð. Það er alltaf jafn gott að vinna fótboltaleiki, sama þó það sé 1-0 eða 5-0. Þetta var kannski pínu stressandi í lokin en mér fannst við samt einhvern veginn aldrei vera í hættu og vera alltaf með þetta í okkar höndum þannig að ég er mjög sátt,“ sagði Jakobína við Sýn Sport eftir leikinn. Aðeins var um annan sigur Stjörnunnar í deildinni að ræða á tímabilinu og var hann því sérlega kærkominn. „Já, klárlega. Þetta hafa líka verið mikið af 50/50 leikjum sem hafa ekki beint dottið með okkur. En við erum búin að tala um það að ef við höldum áfram eins og við erum búin að gera munu stigin koma til okkar. Við þurfum bara að halda áfram. Þetta datt með okkur í dag og mér fannst við eiga það skilið,“ sagði hún. Ég fagnaði bara svona vel Auk þess að vera geysilega þétt varnarlega hefði Stjarnan sömuleiðis getað skorað fleiri mörk enda sóknarleikurinn beinskeyttur. „Já, 100 prósent. Mér fannst við alveg geta sett eitt, jafnvel tvö, í fyrri hálfleik og nokkurn veginn klára leikinn. Við töluðum um það í hálfleik hvað það væri mikilvægt að halda orkustiginu uppi og mér fannst við gera það vel þó þær hafi kannski komið aðeins ofar á okkur í seinni, sem er bara eðlilegt þegar við erum yfir,“ sagði Jakobína. Nokkur vafi lék á því hver skoraði sigurmark Stjörnunnar og var það upphaflega skráð á Jakobínu samkvæmt KSÍ. Hún skoraði hins vegar ekki sigurmarkið heldur félagi hennar í vörninni. „Nei, ég væri alveg til í að taka það á mig!“ sagði Jakobína og hló. „En nei, það var Eva sem skoraði það. Ég bara fagnaði svona vel,“ sagði hún. Jakobína sagði að lokum frá því að Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson dómari leiksins hafi þurft að spyrja leikmenn Stjörnunnar hver hafi skorað og að hún hafi tjáð honum að það væri vinstri bakvörðurinn Eva Marie Wirtz sem hafi gert það.
Stjarnan Besta deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira